Innanríkisráðuneytið grípur í taumana: Ragnheiður og Ravi fá að giftast Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 19. ágúst 2016 14:59 Ragnheiður og Ravi ætla að gifta sig strax í næstu viku. Mynd/Ragnheiður Guðmundsdóttir
Ragnheiður Guðmundsdóttir og unnusti hennar, Ravi Rawat, hafa fengið leyfi til að ganga í hjónaband. Sýslumaðurinn í Reykjavík hafði áður synjað þeim um leyfi til að giftast en sá úrskurður var dreginn til baka í morgun, þegar Innanríkisráðuneytið sneri við úrskurði sýslumanns.Morgunblaðið greindi frá því fyrr í mánuðinum að Ragnheiði, sem berst við fjórða stigs lífhimnukrabbamein, hefði verið synjað um leyfi til að giftast unnusta sínum, á grundvelli þess að gögn frá Indlandi væru ófullnægjandi. Sendiráð Indlands á Íslandi hafði þó staðfest að gögnin væru fullnægjandi. „Við sóttum fyrst um að fá að gifta okkur 1. apríl. Þannig að þetta hefur tekið allan þennan tíma, að fá að giftast,“ segir Ragnheiður í samtali við Vísi. Ravi var með tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi en það var við það að renna út. Ljóst er því að Ravi þarf ekki að fara úr landi frá Ragnheiði á meðan hún berst við krabbameinið. „Ég vona að þetta þýði það að hann fái nú að vera hérna,“ segir Ragnheiður. Ragnheiður og Ravi ætla að gifta sig strax í næstu viku. „Ravi kemur frá þannig menningu að það hefur verið rætt um hjónaband frá upphafi. En við vorum ekki að drífa okkur fyrr en að ég greindist með krabbamein og við áttuðum okkur á því að við þyrftum að vera gift ef hann ætlaði að fá að vera hjá mér í gegnum mína krabbameinsbaráttu og þyrfti ekki alltaf að fara úr landi í sex mánuði til að fá næsta atvinnu- og dvalarleyfi.“ Ragnheiður greindist með krabbamein í byrjun janúar á þessu ári. „Það var ekki nema þá sem við fórum að finna út úr því af alvöru hvernig við ættum að fara að því að gifta okkur.“ Ekki er til formlegt hjúskaparstöðuvottorð á Indlandi en móðir Ravi hafði skriflega staðfest að Ravi væri einhleypur. Sú yfirlýsing hafi svo verið vottuð af þeim yfirvöldum sem skiptu máli, meðal annars héraðsdómi á Indlandi, sýslumanni, utanríkisráðuneyti Indlands og svo loks sendiráði Indlands á Íslandi. „Einhvern veginn náði lögmaður okkar þessu í gegn, að þeir drógu ákvörðun sína til baka. Ég held að þeir hafi bara þurft aðstoð við að lesa pappírana því þeir voru lögmætir allan tímann,“ segir Ragnheiður.
Mest lesið Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Innlent Fleiri fréttir Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Sjá meira