Margir verða fyrir ofbeldi á internetinu Sveinn Arnarsson skrifar 22. ágúst 2016 06:00 Gera má ráð fyrir að um eitt hundrað þúsund manns brjóti af sér reglulega á netinu.
Alls þrettán prósent Íslendinga á aldrinum 18-76 ára segjast hafa orðið fyrir netbroti á síðustu þremur árum. Algengast er að hafa orðið fyrir meiðyrðum eða rógburði, eða 33 prósent allra þeirra sem urðu fyrir netbroti. Að sama skapi hafði fjórðungur svarenda heimsótt klámsíður á sama tímabili. Einnig sögðust þrettán prósent svarenda hafa orðið þolendur afbrots á netinu á síðustu þremur árum. Þá var algengt að nefna fjársvik og kreditkortasvindl. Rannsóknin var gerð af Helga Gunnlaugssyni, prófessors í félagsfræði við HÍ, og Jónasi Orra Jónassyni, félagsfræðingi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við Félagsvísindastofnun HÍ. Það sem einnig kemur fram er að eftir því sem einstaklingur notar netið meira, því líklegra er að hann verði fyrir einhvers konar netbroti..Helgi Gunnlaugsson prófessor félagsfræði afbrotafræði„Áhugavert er að skoða þolendur netbrota. Netbrot eru býsna algeng og bara það að brotin séu nefnd, eins og að rógi og meiðyrðum sé dreift um þá á netinu, sýnir að mönnum er ekki sama,“ segir Helgi. „Svo ekki sé minnst á fjársvik, hótanir um ofbeldi eða kynferðislega áreitni sem sannarlega hefur áhrif á þolendur.“ Mikið hefur verið rætt um hugmyndir innanríkisráðherra um nýja netbrotadeild lögreglunnar. Ljóst er að afbrot á netinu miðað við núverandi lagaramma eru gríðarlega útbreidd meðal ungs fólks og því líklegt að deild innan lögreglunnar sem ætti að rannsaka niðurhal myndi fyrst og fremst beinast að ungu fólki. „Niðurstöðurnar um ólöglegt niðurhal eru sláandi og sýna svart á hvítu að lífsstíll og hugsunarháttur unga fólksins er töluvert frábrugðinn hinna eldri og kominn langt út fyrir það sem hefðbundin löggjöf heimilar og gerir ráð fyrir,“ segir Helgi. „Unga kynslóðin hefur vaxið fram úr lagarammanum og áleitin spurning hvernig bregðast eigi við. Á að berja ungdóminn inn í hefðbundinn lagaramma eða verður að breyta löggjöfinni á einhvern hátt til að mæta þessum nýja tæknilega veruleika?“ bætir Helgi við
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins Sjá meira