Bændur sem fara illa með dýr missi styrki Sveinn Arnarsson skrifar 25. ágúst 2016 07:00 Langstærstur hluti bænda fer vel með dýr sín en taka þarf hart á svörtum sauðum að mati DÍS. vísir/eyþór
Dýraverndunarsamband Íslands vill að Matvælastofnun fái úrræði til að fella niður opinberar greiðslur í landbúnaði vegna brota á lögum og reglugerðum um velferð dýra. Ákvæði þessa efnis var tekið út úr samningunum árið 2013. Ástæðan var sú að Bændasamtök Íslands og Landssamband kúabænda lögðust gegn ákvæðinu. Nú er komið annað hljóð í strokkinn og hefur formaður Bændasamtakanna sem og stjórn Landssambands kúabænda verið jákvæð í garð þess að slíkt ákvæði verði sett aftur inn í samningana.Hallgerður HauksdóttirÍ harðorðri umsögn Dýraverndunarsambands Íslands um búvörusamninga segir félagið það ótækt með öllu að ríkið styrki fjárhagslega í gegnum búvörusamninga aðila sem uppvísir eru að lögbrotum eins og alvarlegu dýraníði. Skorar það á Alþingi að sjá til þess að heimild til að fella niður opinbera styrki vegna alvarlegs eða ítrekaðs dýraníðs verði felld inn í nýja búvörusamninga og búvörulög. „Ég fæ ekki betur séð en að hið opinbera veiti ekki nægt fé til eftirlits með dýraníði hér á landi. Íslenskir neytendur vilja ekki að skattfé renni til einstaklinga sem uppvísir eru að hrottalegu dýraníði og því þarf Matvælastofnun að búa yfir úrræði til að stöðva svoleiðis voðaverk,“ segir Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands, í samtali við Fréttablaðið. „Enda hafa engir stigið fram í þeirri umræðu og lýst yfir stuðningi við að einstaklingar sem uppvísir eru að illri meðferð á skepnum njóti styrkja,“ bætir Hallgerður við. Dæmi eru um hrottalega meðferð bænda á gripum sínum. Í fyrra kom til að mynda upp mál þar sem bóndi á Norðurlandi batt kvígu í sinni eigu aftan í jeppa og dró hana eftir götunni. Var sú meðferð gagnrýnd harðlega en kvígan drapst af því að vera dregin eftir götunni. Hallgerður segir það skipta máli að hægt sé að taka á verknaði sem þessum. „Til að mynda fær bóndi sem bindur kú sína aftan í bíl og dregur hana til dauða aðeins þrjú til fjögur hundruð þúsund krónur í stjórnvaldssekt en hann má enn halda skepnur. MAST þarf úrræði til að stöðva svoleiðis menn,“ segir Hallgerður.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Fleiri fréttir Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Sjá meira