Borgin sameinar tvo leikskóla í Víkur- og Staðahverfi Atli Ísleifsson skrifar 25. ágúst 2016 09:59 Leikskólinn Bakki í Staðahverfi. Mynd/Reykjavíkurborg
Leikskólarnir Bakki í Staðahverfi og Hamrar í Víkurhverfi í Grafarvogi verða sameinaðir og mun sameiningin koma til framkvæmda eigi síðar en 1. janúar 2017. Skóla- og frístundaráð samþykkti tillögu þessa efnis á fundi sínum 24. ágúst. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að haft verði náið samstarf við foreldra og starfsfólk um sameininguna og verði skipaður starfshópur með fulltrúum beggja leikskóla sem gera mun áætlun um hvernig að henni verði staðið. „Í greinargerð með tillögunni segir að með sameiningu leikskólanna verði til tvær heildstæðar skólastofnanir í Víkur- og Staðahverfi með einn sameinaðan leikskóla og einn sameinaðan grunnskóla. Nú þegar sækja unglingar sem búsettir eru í Staðahverfi, nám sitt í Kelduskóla/Vík og tengsl hverfanna mætti efla enn frekar með þessari skólasameiningu.Leikskólinn Hamrar í Víkurhverfi.Mynd/reykjavíkurborgBörnum hefur á undanförnum árum fækkað í leikskólanum Bakka og telst hann því ekki hagkvæm fagleg og rekstrarleg eining. Leikskólinn er ekki fullnýttur en hann rúmar 69 börn. Um 50 börn á leikskólaaldri eru búsett í Staðarhverfi. Bakki var áður rekinn með leikskólanum Bergi á Kjalarnesi undir heitinu Bakkaberg. Leikskólinn Berg var í vor sameinaður með grunnskóla og tónlistarskólanum á Kjalarnesi. Leikskólinn Hamrar rúmar 88 börn auk 16 barna í lausri stofu. Samtals mun nýr sameinaður leikskóli í Víkur- og Staðahverfi því rúma á bilinu 157-173 börn. Akstursleið á milli starfseininga sameinaðs leikskóla er 1,7 km og stysta gönguleið um 1,8 km. Samþykkt skóla- og frístundaráðs mun fara fyrir borgarráð til endanlegrar afgreiðslu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Fleiri fréttir Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Sjá meira