Fillon hafði betur gegn Juppé í sjónvarpskappræðum Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2016 12:34 François Fillon og Alain Juppé. Vísir/AFP
François Fillon er talinn hafa haft betur í sjónvarpskappræðum hans og Alain Juppé í gærkvöldi. Þeir Fillon og Juppé berjast nú um hvor þeirra verði forsetaefni Repúblikana í frönsku forsetakosningunum sem fram fara næsta vor. Repúblikanar munu velja forsetaframbjóðanda sinn á sunnudag, en Fillon hlaut 44,2 prósent atkvæða í fyrri umferð kosninganna, Juppé 28,4 prósent og forsetinn fyrrverandi, Nicolas Sarkozy, 20,7 prósent. Litlu munaði að Fillon næði 50 prósent atkvæða sem hefði gert síðari umferðina óþarfa. Niðurstaðan kom nokkuð á óvart þar sem hinn 71 árs Juppé hafði lengi verið talinn langlíklegastur til að verða fyrir valinu. Fillon, 62 ára landaði þó nokkuð öruggum sigri í fyrri umferðinni þegar upp var staðið. „Alain Juppé vill í raun engar breytingar. Hann vill viðhalda kerfinu og einungis bæta það. Verkefni mitt er rótttækara,“ sagði Fillon í kappræðunum í gær. Fillon er mikill aðdáandi fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Margaret Thatcher, og segir Juppé að hugmyndir Fillon um niðurskurð í hinum opinbera geira vera óraunhæfar. Juppé er borgarstjóri Bordeaux og gegndi embætti forsætisráðherra á árunum 1995 til 1997. Fillon var forsætisráðherra Frakklands á árunum 2007 til 2012. Forsetakosningar fara fram í Frakklandi næsta vor og benda skoðanakannanir til að forsetaefni Repúblikana muni kljást við Marine Le Pen, leiðtoga Front National, í síðari umferð kosninganna. Sósíalistar munu velja sitt forsetaefni í janúar, en sósíalistinn Francois Hollande Frakklandsforseti hefur enn ekki lýst því yfir hvort hann sækist eftir endurkjöri.
Tengdar fréttir Fillon og Juppé munu kljást um útnefningu franskra Repúblikana Francois Fillon hlaut rúmlega 44 prósent atkvæða í fyrri umferðinni um nýliðna helgi. 21. nóvember 2016 11:07 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira
Fillon og Juppé munu kljást um útnefningu franskra Repúblikana Francois Fillon hlaut rúmlega 44 prósent atkvæða í fyrri umferðinni um nýliðna helgi. 21. nóvember 2016 11:07