Glódís Perla á bekknum í sigri Eskilstuna Smári Jökull Jónsson skrifar 16. október 2016 15:23 Glódís Perla Viggósdóttir. vísir/eyþór
Glódís Perla Viggósdóttir sat á bekknum þegar lið hennar Eskilstuna vann góðan útisigur í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Glódís hefur átt fast sæti í byrjunarliðinu hjá Eskilstuna á tímabilinu en sat á bekknum í dag. Liðið mætti FC Rosengård á útivelli en lið Rosengård sló Breiðablik úr keppni í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Rosengård átti möguleika á að halda sér í titilbaráttu fyrir þennan leik en var þó í erfiðri stöðu, fimm stigum á eftir Linköping. Eskilstuna lét það þó ekkert hafa áhrif á sig og komst í 2-0 með mörkum frá Mimmi Larsson og Marija Banusic. Rosengård náði að minnka muninn í síðari hálfleik en lengra komust þær ekki og góður sigur Eskilstuna staðreynd. Þar sem Linköping vann sigur í sínum leik tryggðu þær sér meistaratitilinn og eru með átta stiga forystu í deildinni þegar tvær umferðir eru eftir. Eskiilstuna er í 4.sæti með 35 stig, stigi á eftir Piteå sem er í þriðja sæti. Liðin eru þó töluvert langt á eftir Rosengård í töflunni. Katrín Ómarsdóttir var í byrjunarliði Doncaster Belles sem mætti Notts County í ensku deildinni. Doncaster komst yfir snemma í leiknum en Notts County náði að svara með tveimur mörkum og tryggja sér 2-1 sigur. Doncaster hefur tapað öllum leikjum sínum í deildinni til þessa og er langneðst.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Messi og Suárez í stuði Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Aflýstu leik vegna skutlukasts „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ „Þetta var alltaf mitt mark“ „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Kristian Nökkvi og félagar nokkrum stigum frá toppnum Sigurganga Börsunga heldur áfram Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Fiskaði rautt spjald í sigri Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Henderson í stuði í stórsigri Mikael lagði upp og meiddist en Logi í basli gegn Salah Magnað mark dugði fyrir sigri „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Sjá meira