Eins og að yfirgefa rokkhljómsveit Sara McMahon skrifar 1. október 2016 10:00 Unnur Ösp hefur sagt skilið við Hallgerði í verkinu Njálu og einbeitir sér nú að nýju verki þar sem hún leikur móti Birni Thors. Mynd/Ernir „
Það er auðvitað alltaf erfitt að kveðja sýningar sem maður hefur tekið þátt í, sérstaklega sýningu sem þessa þar sem allur hópurinn tekur ríkan þátt í að skapa. Þetta er meira eins og að ganga út úr hljómsveit – eins og ég sé að yfirgefa rokkhljómsveitina mína – og tilfinningarnar eru blendnar,“ segir leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir sem hefur sagt skilið við hlutverk Hallgerðar langbrókar í leikverkinu Njálu vegna óléttu. Við keflinu tekur Elma Stefanía Ágústsdóttir. Njála er byggð á Brennu-Njáls Sögu og sýnd í Borgarleikhúsinu. Verkið var tilnefnt til alls ellefu Grímu verðlauna í fyrra og hlaut tíu Grímur, meðal annars fyrir sýningu ársins. „Þetta er mjög líkamlega krefjandi hlutverk, það er mikið um dans, hopp og að ég kasti mér í gólfið, þannig í ljósi þess var ágætt að fá að stíga til hliðar. Það var líka alveg geggjuð upplifun að fá að sitja úti í sal um daginn og horfa á sýninguna, það eru fáir leikarar sem fá tækifæri til þess að vera áhorfandi á eigin sýningu.“ Leikkonan Elma Stefanía tekur við hlutverki Hallgerðar af Unni. Hún segir undirbúning hafa gengið vel og að það sé einstaklega gaman að fá að taka þátt í sýningu sem þessari. Innt eftir því hvort það sé mikið mál að taka við hlutverki með svo stuttum fyrirvara, svarar Elma Stefanía að það sé erfitt en vel hægt. „Maður gerir bara það sem þarf að gera; lærir að dansa með Íslenska dansflokknum og svo framvegis. Undirbúningurinn hefur gengið vel og það er alveg ótrúlega gaman að fá að taka þátt í þessari sýningu. Þetta er bara eins og að vera með í rokk „showi“.“ Elma Stefanía Ágústsdóttir tekur við hlutverki Unnar Aspar. Fréttablaðið/Daníel RúnarssonUnnur Ösp vinnur einnig að uppsetningu verksins Brot úr hjónabandi sem byggt er á sjónvarpsþáttum eftir Ingmar Bergman frá 1973, í leikstjórn Ólafs Egils Egilssonar. Verkið er hressandi og sársaukafullt uppgjör hjóna og mótleikari Unnar Aspar er eiginmaður hennar, leikarinn Björn Thors. Unnur segir það sannarlega skrítið fyrir þau hjónin að stíga í þessi hlutverk í ljósi aðstæðna. „Við erum auðvitað bara að vinna vinnuna okkar og nálgumst þetta á faglegum forsendum. En sambandið má vissulega ekki hanga á bláþræði þegar maður fer inn í skilnaðardrama. Þetta er ansi nærgöngult verk og krefjandi en á sama tíma skemmtilegt og mikil forréttindi að fá að taka þátt í þessu með manninum sínum. Við höfum grínast með það að Brad (Pitt) og Angelina (Jolie) og Tom (Cruise) og Nicole (Kidman) skildu öll eftir að hafa leikið í „hjónamyndunum“ sínum. Við fetum vonandi ekki í fótspor þeirra en við spyrjum að leikslokum ,“ segir hún og hlær.
Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Sjá meira