Öflugur jarðskjálfti reið yfir utan við Fukushima í Japan Anton Egilsson skrifar 21. nóvember 2016 21:36 Jarðskjálftinn reið yfir við strendur Fukushima.
Öflugur jarðskjálfti reið yfir utan við strendur Fukushima í Japan nú fyrir skemmstu eða klukkan sex að morgni að staðartíma. Samkvæmt heimildum Bloomberg hefur flóðbylgjuviðvörun verið send út þar sem ölduhæð getur náð upp í allt að þrjá metra. Þá er einnig talin hætta á aurskriðum. Staðfest hefur verið að um allt að metra háar öldur séu sjáanlegar við strendur Fukushima. Viðvörun um hugsanlegar stærri öldur er enn í gildi. Fólk á nærliggjandi svæðum er hvatt til að færa sig hærra upp í landið. Japanska veðurstofan hefur sagt að jarðskjálftinn hafi mælst 7,4 að stærð. Jarðskjálftinn er sagður hafa verið á allt að 25 kílómetra dýpi . Tveir eftirskjálftar hafa riðið yfir í kjölfarið, annar þeirra mældist 5,4 að stærð en hinn 4,8. Búist er við fleiri eftirskjálftum á næstu klukkustundum. Enn er óljóst hve miklar skemmdir hafa orðið af völdum jarðskjálftans en einhverjar fregnir hafa borist um minniháttar meiðsl á fólki. Töluvert umrót varð við skjálftann í Tókýó, höfuðborg Japans, en þar var fólk hvatt til að yfirgefa tiltekin strandsvæði. Þá á skjálftinn að hafa skokið byggingar í borginni en hún er staðsett um 240 kílómetra suðvestur af skjálftamiðjunni. Tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson er staddur í Tókýó og greinir frá því á Twitter síðu sinni að hann hafi fundið fyrir jarðskjálftanum.Intense jarðskjálfti í Tókýó, allt hristist á hótelinu, fólk farið að öskra frammi á gangi. En allt víst safe núna. https://t.co/g8atsS9eBC— Logi Pedro (@logifknpedro) November 21, 2016 Fukushima fór illa út úr jarðskjálfta árið 2011 Í mars árið 2011 varð Fukushima mjög illa úti í kröftugum jarðskjálfta sem mældist 9,0 stig og flóðbylgju sem fylgdi í kjölfarið. Hátt í 19 þúsund manns létu lífið í flóðbylgjunni sem skolaði heilum bæjum á brott. Enn er leitað líkum að 2.561 manns sem týndust. Þá þurftu um 160 þúsund manns að flýja frá Fukushima kjarnorkuverinu sem varð fyrir verulegum skemmdum vegna flóðbylgjunnar.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Fleiri fréttir Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Sjá meira