Tyrkneskir herforingjar sækja um hæli í Evrópu Samúel Karl Ólason skrifar 18. nóvember 2016 16:30 Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO. Vísir/AFP
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir að tyrkneskir herforingjar hafi sótt um hæli í Evrópu. Það hafi þeir gert í kjölfar valdaránsins sem misheppnaðist í júlí. Hann gaf ekki upp fjölda þeirra sem hafa sótt um hæli né frekari upplýsingar, en sagði að hvert ríki fyrir sig myndi fara yfir umsóknir herforingjanna. Yfirvöld í Tyrklandi hafa handtekið, fangelsað og rekið rúmlega 110 þúsund hermenn, kennara, blaðamenn, lögregluþjóna og dómara eftir valdaránið. Um 36 þúsund manns eru í fangelsi. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa gagnrýnt aðgerðir yfirvalda í Tyrklandi, en þar hafa neyðarlög verið í gildi frá valdaránstilrauninni sem gera forsetann og ríkisstjórn hans nánast allsráðandi. Tyrkland er meðlimur í NATO en Stoltenberg sagði að herforingjar sem hafa verið að starfa innan bandalagsins hafi sótt um hæli í þeim Evrópuríkjum þar sem þeir hafa verið að störfum. Flóttamannastofnun Þýskalands sagði í dag að frá byrjun árs til október hefði þeim borist 4,438 hælisumsóknir frá Tyrkjum. Það er mikil fjölgun á milli ára en þá voru umsóknirnar 1.767 á sama tímabili. Yfirvöld í Tyrklandi neita að hafa notað valdaránið til að ryðja andstæðingum sínum úr vegi.
Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Sjá meira