Átök í Tyrklandi: Þingmenn HDP handteknir Díana Sjöfn Jóhannsdóttir skrifar 4. nóvember 2016 16:47 HDP flokkurinn er ásakaður um að vinna gegn tyrkneska ríkinu
Leiðtogar og þingmenn stjórnmálaflokksins HDP í Tyrklandi hafa verið handteknir vegna ásakana um að hafa dreift áróðri fyrir uppreisnarmenn og hindra rannsókn á hryðjuverkum. Selahattin Demirtas, formaður flokksins, var handtekinn í Diyarbakir ásamt níu öðrum þingmönnum en einungis klukkutíma eftir handtöku Demirtas sprakk bílasprengja í borginni sem varð átta mönnum að bana og særði um hundrað. Uppreisnarmenn hafa verið að berjast móti tyrkneska ríkinu í fjölda ára fyrir sjálfstæði Kúrda, sem er stærsti minnihlutahópurinn í Tyrklandi. Átökin milli HDP og ríkisstjórnarinnar spretta upp af þessum deilum en ríkisstjórnin vill meina að þeir þingmenn sem hafa verið handteknir séu í haldi vegna þess að þeir hafi neitað að mæta til yfirheyrslu er varðar rannsókn á hryðjuverkum. Þá eru þingmennirnir sakaðir um að hafa verið að dreifa áróðri fyrir PKK sem er flokkur Kúrda, en flokkurinn er grunaður um fjölda árása á síðustu dögum, meðal annars bílasprengjuna. Frá þessu greinir vefur BBC. Kúrdíski verkamannaflokkurinn PKK hefur verið stimplaður sem hryðjuverkasamtök af Bandaríkjunum, Evrópusambandinu og Tyrklandi. PKK hefur verið í baráttu gegn tyrkneska ríkinu síðan árið 1970, í stríði sem hefur tekið um 40 þúsund líf. Mikil spenna hefur aftur sprottið upp í suðausturhluta Tyrklands þar sem Kúrdar halda sig að mestu eftir að vopnahlé hætti árið 2015. Neyðarlög voru sett í Tyrklandi eftir misheppnaða tilraun hersins til valdaráns í júlí á árinu en neyðarlögin gera forsetanum Recep Tayyip Erdogan og ríkisstjórn hans kleift að fara framhjá alþingislögum og takmarka frelsi og réttindi einstaklinga að vild. Tyrkneskir stjórnarmenn eru venjulega með friðhelgi fyrir slíkri frelsissviptingu en þau lög voru afnumin í maí. HDP flokkurinn í Tyrklandi er oftast álitinn sem helsta stuðningsafl Kúrda í flokkspólitíkinni, en flokkurinn höfðar sérstaklega til vinstri sinnaðra, frjálslyndra og umhverfis – og jafnréttissinna. Flokkurinn er þriðji stærsti í landinu með 59 sæti á þingi af 550. Forsvarsmenn flokksins hafa neitað alfarið um að vera tengdir kúrdíska verkamannaflokknum PKK.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira