Stjórn Erdogans Tyrklandsforseta ræðst gegn Kúrdum á þingi Guðsteinn Bjarnason skrifar 5. nóvember 2016 07:00 Átta manns létu lífið í sprengjuárás í Diyarbakir í gær. Nordicphotos/AFP
Leiðtogar HDP-flokks Kúrda á tyrkneska þinginu, þau Selahattin Demirtas og Figen Yukdekdag, hafa verið handtekin ásamt um tíu öðrum þingmönnum flokksins. Nokkrum klukkustundum síðar varð sprengjuárás í Diyarbakir átta manns að bana. Meira en hundrað særðust. Diyarbakir er helsta borgin í Kúrdahéruðum landsins. Handtökur Kúrdaþingmannanna koma í beinu framhaldi af víðtækum hreinsunum í stjórnkerfinu, þar sem tugþúsundir hafa verið reknar og þúsundir handteknar.Selahattin Demirtas og Figen Yuksekdag, leiðtogar HDP-flokks kúrda.Nordicphotos/AFPAllt þetta fólk hefur verið sakað um tengsl við Gülen-hreyfinguna sem stjórn Receps Tayyips Erdogan forseta telur hafa staðið á bak við stjórnarbyltingartilraun í sumar. Kúrdar tilheyra einnig þeim hópi sem Erdogan lítur á sem andstæðinga sína, þótt ekki hafi þeir til þessa verið tengdir sérstaklega við stjórnarbyltingartilraunina. Stjórnarherinn hefur hins vegar átt í átökum við Kúrda í suðausturhluta landsins, þar sem Kúrdasveitir hafa vopnast gegn vígamönnum Íslamska ríkisins handan landamæranna í Sýrlandi. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira