Guterres næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. október 2016 23:30 Antonio Gutierres. vísir/epa
Antonio Guterres fyrrverandi forsætisráðherra Portúgal verður næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Þetta var staðfest á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í dag en formleg atkvæðagreiðsla um fer þó ekki fram fyrr en á morgun. Öryggisráðið mælir með Guterres sem framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna við Allsherjarþing SÞ sem þarf að samþykkja tilnefningu Öryggisráðsins. Í dag fór fram leynileg atkvæðagreiðsla í ráðinu þar sem fulltrúar þeirra fimmtán ríkja sem eiga sæti þar kusu á milli þeirra tíu sem valið stóð um. Þrettán kusu með því að mæla með Guterres í embættið og tveir mæltu hvorki með neinum né á móti neinum.Fulltrúi Rússa í Öryggisráðinu Vitaly Churkin kynnti niðurstöðu kosningarinnar fyrir fjölmiðlum. Hann sagði að allir þeir sem komu til greina í embættið hafi verið vel hæfir til þess að gegna því en augljóst væri að öryggisráðið vildi fá Guterres til starfans. Einhverjir höfðu vonast eftir því að kona yrði nú kosin til embættisins en kona hefur aldrei verið framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Guterres mun taka við sem framkvæmdastjóri í byrjun næsta árs af Ban Ki-Moon sem gegnt hefur embættinu í tíu ár. Vísir fjallaði ítarlega um feril Guterres í ágúst síðastliðnum en hann fæddist í Lissabon árið 1949. Hann var forsætisráðherra Portúgals á árunum 1995 til 2002 en árið 2005 varð hann yfirmaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Því embætti gegndi hann til ársins 2015 en nánar má lesa um feril Guterres hér.
Tengdar fréttir Portúgali líklegasti arftaki Ban Ki-moon Fyrrum forsætisráðherra Portúgal, Antonio Gutierres, er talinn vera líklegasti arftaki Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. 29. ágúst 2016 22:52 Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Sjá meira
Portúgali líklegasti arftaki Ban Ki-moon Fyrrum forsætisráðherra Portúgal, Antonio Gutierres, er talinn vera líklegasti arftaki Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. 29. ágúst 2016 22:52