Verkefnið vannýtt verkfæri 27. september 2016 11:00 Í íþróttaiðkun barna og unglinga eru það litlu hlutirnir sem skipta máli og er unnið með þá jákvæðu nálgun að vinna með styrkleika hvers og eins og að hrósa í Sýnum karakter.
Verkefnið Sýnum karakter er hugsað sem verkfæri fyrir þjálfara til að hlúa að og efla andlega og félagslega þætti hjá börnum og unglingum. Upphaf verkefnisins nær aftur til ársins 2012 þegar Ungmennasamband Kjalarnesþings, UMSK, í samstarfi við dr. Viðar Halldórsson, lektor í félagsfræði við Háskóla Íslands, fór af stað með verkefnið. Það hefur verið prófað hjá nokkrum félögum og verið í þróun síðan þá. „Við fundum út hvaða aðferðum við myndum vilja beita til að gera þetta sem auðveldast fyrir þjálfara, íþróttafélögin, héraðssamböndin og alla sambandsaðila til að nýta sér þetta verkfæri,“ segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir, verkefnastjóri UMFÍ, sem hefur starfað við verkefnið frá upphafi. Ráðstefnan Sýnum karakter verður haldin í Háskólanum í Reykjavík næstkomandi laugardag og standa ÍSÍ og UMFÍ saman að ráðstefnunni sem markar upphaf að sameiginlegu verkefni og vefsíðu með sama heiti.Sýnum karakter er samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ. Sabína segir að samtökin vinni markvisst í sameiningu að þessu verkefni og með því sé brotið blað í sögu þeirra. Það sé gott fyrir alla.Notendavænt verkefni Verkefnið Sýnum karakter byggir á Framtíðinni, leiðarvísi í þjálfun barna og ungmenna sem Viðar hefur þróað í mörg ár með það fyrir augum að finna styrkleika íþróttafólks. Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, íþróttasálfræðingur og sviðsstjóri á íþróttasviði Háskólans í Reykjavík, er einnig höfundur að efni Sýnum karakter. „Við erum með hæft fagfólk í að vinna efnið til að gera það sem best úr garði og að þetta sé notendavænt verkfæri. Þetta á ekki að vera kvöð fyrir þjálfara heldur að blandast í þá þjálfun sem er til staðar með þeim markmiðum að vinna með andlega og félagslega þætti barna og ungmenna,“ segir Sabína.Andlegir og félagslegir þættir mikilvægir Í verkefninu er einblínt á þann jákvæða ávinning sem hlýst af íþróttaiðkun umfram líkamlegan, svo sem áhugahvöt, félagsfærni, sjálfstraust, einbeitingu, leiðtogahæfni og markmiðasetningu. Sabína segir reynsluna af verkefninu vera góða. „Með verkefninu er ekki bara unnið með líkamlega þjálfun barna og ungmenna heldur er verið að byggja upp sterka einstaklinga til frambúðar. Það er gríðarlega mikilvægt að leggja áherslu á félagslega og andlega þætti. Heilsan er þríþætt; líkamleg, andleg og félagsleg, og það er mikilvægt fyrir barn sem er til dæmis ekki sterkast í greininni tæknilega að það geti verið mikill stuðningur sem sterkur leiðtogi. Verkefnið nýtist líka vel þegar farið er þvert á félögin, þá fá börn sem eru að æfa fleiri en eina grein sömu skilaboð milli íþróttagreina.“Sterkari einstaklingar Í Sýnum karakter verkefninu er hvað mest verið að horfa til barna og ungmenna á aldrinum þrettán til átján ára. „Þetta er aldurinn þar sem við erum helst að finna fyrir brottfalli. Þá er gott að styrkja alla þessa þætti en verkefninu er beitt fyrir yngri krakka líka. Brottfall er þó ekki endilega það versta, aðalatriðið er að krakkar finni sér þá eitthvað annað skipulegt starf til að stunda sem er fyrirbyggjandi fyrir áhættuhegðun. Með verkefninu erum við vonandi að skila sterkari einstaklingum út í samfélagið. Ég held að Sýnum karakter sé vannýtt verkfæri, börn og ungmenni eru hjá okkur af því þau vilja það. Ef við sinnum ekki þeim öllum að verðleikum og vinnum með styrkleika þeirra þá er það hlutverk þjálfarans að vera opinn fyrir leiðum til að styrkja alla,“ lýsir Sabína.Vefsíða opnuð Ráðstefnan verður haldin næsta laugardag klukkan tíu í Háskólanum í Reykjavík og er þátttökugjald tvö þúsund krónur. Hún er öllum opin og eru, foreldrar jafnt sem þjálfarar, iðkendur og aðrir sem áhuga hafa, hvattir til að mæta. Á ráðstefnunni mun íþróttafólk og þjálfarar halda erindi um ýmsar hliðar þjálfunar og ræða málið í pallborði og ráðstefnugestir geta tekið þátt í umræðunum. Vefsíðan Sýnum karakter verður opnuð sama dag en þar verða greinar og viðtöl við þjálfara og afreksíþróttafólk þar sem helsta umfjöllunarefni er efling andlegra og félagslegra þátta í gegnum þjálfun.
Mest lesið Stjörnulífið: „Stefnir í skvísulæti og almenna kynvillu hjá þessum fjórum“ Lífið Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Lífið Hefndi sín í tilefni af feðradeginum Lífið Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Lífið „Það má ekki gleyma því af hverju við vorum að þessu“ Lífið Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Lífið Íslenskir áhrifavaldar fögnuðu sumrinu að sænskum sið Lífið Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Lífið Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Lífið Þroskaþjófur á skjánum: Krakkar jafnvel í vandræðum með að tala íslensku Áskorun Fleiri fréttir Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Stjörnulífið: „Stefnir í skvísulæti og almenna kynvillu hjá þessum fjórum“ Hefndi sín í tilefni af feðradeginum Íslenskir áhrifavaldar fögnuðu sumrinu að sænskum sið „Það má ekki gleyma því af hverju við vorum að þessu“ Allt frá húðflúri yfir í dót úr skúrnum hans Steinda Tjaldsungi klaktist út eftir tæpar tvær vikur á ofninum Skorar á Unu Torfa í tilefni dagsins Krakkatían: Fjöll, firnindi og tónlist Leggur til meiriháttar átak til að lengja svefn Íslendinga Kvikmyndin O í forvali til Óskarsverðlauna Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Munnvatnið skiptir öllu máli Kærleiksherferð til heiðurs Bryndísi Klöru og betra samfélagi Heitur Teitur selur Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann Króli og Birta eiga von á barni Glæsihöll Haraldar við Elliðavatn Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Sabrina Carpenter gagnrýnd fyrir að ýta undir hlutgervingu kvenna Bjössi í Mínus er ný rödd Sýnar Hreinar húðvörur sem þú vildir óska að þú hefðir kynnst fyrr Fær ýmist þumalinn eða löngutöng vegna einkanúmersins Sjá meira