Útistundir og ævintýri í faðmi fjölskyldunnar 17. september 2016 15:00 Skemmtilegt er að elda úti, þar sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í eldamennskunni. Myndir/Pálína
Áhugi minn á útivist kviknaði þegar ég var í sveit í Trékyllisvík á Ströndum sem er að mínu mati ein fallegasta náttúruparadís Íslands. Mér fannst eitthvað framandi við fjallgöngufólkið sem kom á sumrin til að takast á við fjöllin í sveitinni. Ég sá þetta draumkennt fyrir mér og dreymdi um að gera slíkt hið sama. Það sem situr samt mest í minningunni eru þó fjöruferðirnar, þar gat ég eytt heilu dögunum og spáð í náttúruna, tínt skeljar og pælt í fuglunum. Þessi áhugi hefur svo fylgt mér alla tíð,“ segir Pálína Ósk Hraundal, spurð hvaðan áhugi hennar á útivist komi. Pálína Ósk er menntaður ferðamálafræðingur og búsett í Ósló ásamt manni sínum, dóttur og hvolpnum Millý. Fjölskyldan eyðir markvisst miklum tíma í útiveru og notar alls konar ólíkar aðferðir til þess að upplifa náttúruna saman. „Við erum sannfærð um að útivera bætir og kætir, því reynum við að flétta útivist inn í dagsdaglegt líf okkar með alls konar skemmtilegum hugmyndum. Gönguferðir og útieldun eru í miklu uppáhaldi,“ segir hún og bætir við að fátt sé skemmtilegra en að ganga inn í dali og upp á fjöll og góður prímus eyðileggi aldrei upplifunina. Óhætt er að segja að útivist er töluvert aðgengilegri í dag en hér áður fyrr, en það getur verið krefjandi að byrja að stunda markvissa útivist. „Ef þú áttir erfitt með að komast í skátastarf eða björgunarsveit þá var frekar erfitt að finna stað til að byrja hér áður fyrr. Í dag er það þó breytt og tel ég marga aðila vera að vinna gott starf til að auðvelda krökkum og unglingum að komast af stað. Hægt er að fara í siglingaklúbba, nýliðaprógrammið hjá björgunarsveitunum og Ferðafélag unga fólksins svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún. Uppskrift fyrir útistund „Ef við fjölskyldan ætlum að gera okkur glaðan dag þá tökum við gjarnan pönnukökudeig með í flösku og steikjum okkur nokkrar pönnsur úti yfir prímus. Það er létt og auðvelt að ferðast með þetta í bakpokanum og lítil fyrirhöfn, Pönnukökurnar eru frábærar, t.d. á sunnudögum þegar við getum sest niður í ró og næði og notið þess að gera vel við okkur. Allir elska pönnsurnar og þær bragðast enn þá betur úti. Nú þegar berjatíðin er í fullum gangi er fátt sem toppar það að taka með sér prímus og pönnukökudeig og setjast niður í berjapásunni og njóta þess að fá sér pönnukökur með ferskum berjum. Í okkar huga er þetta toppurinn.“
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira