Þingkonur Framsóknar taka undir með Prins Póló Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 23. ágúst 2016 14:40 Þingkonurnar tóku til máls undir dagskrárliðnum Störf þingsins í dag.
Þær Þórunn Egilsdóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkonur Framsóknarflokksins, gerðu þriggja fasa rafmagn í dreifbýli að umræðuefni sínu undir liðnum Störf þingsins í dag.Vísir greindi frá því í gær að Svavar Pétur Eysteinsson, bóndi í Berufirði, sem betur er þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló, hefði sent þingmönnum bréf. Þar óskaði hann eftir upplýsingum um hvaða áætlun væri varðandi þriggja fasa rafmagn í dreifbíli á Austurlandi. „Við komum hingað austur með nokkrar hugmyndir í farteskinu um að hefja hér matvælaframleiðslu en rekum okkur fljótlega á það að öll tæki sem við þurfum í slíka framleiðslu eru þriggja fasa tæki. Þetta var eitthvað sem við pældum ekki mikið í áður en við fluttum því þetta er svo sjálfsagður hlutur í Reykjavík, en við fórum sem sagt í það að breyta þeim tækjum sem við vorum komin með en það er gríðarlegur kostnaður sem fylgir því og óhemju tími sem það tekur,“ sagði Svavar Pétur í samtali við Vísi. Svavar sagði jafnframt að rafmagn í dreifbýli á Austurlandi væri byggt upp í kringum suauðfjárbúskap og að mikilvægt sé að nútímavæða sveitina. Það þurfi jafnframt að bæta sjarskiptasamband á svæðinu. Bæði Þórunn og Silja Dögg telja mikilvægt að bæta innviði. „Menn sitja alls ekki við sama borð hvað varðar aðgang að því sem mörg okkar telja sjálfsagða innviði,“ sagði Silja Dögg. Þá sagði Þórunn að dreifikerfi raforkunnar og áframhaldandi uppbygging þess þarfnist verulegrar innspýtingar. „Þrátt fyrir að allar heimtaugar séu tilbúnar fyrir þriggja fasa kerfi eru um 30% háspennukerfisins enn einfasa. Það er verulega hamlandi fyrir alla atvinnustarfsemi eins og dæmin sanna,“ sagði Þórunn. „Við eigum að setja markið hátt því að við getum það.“
Tengdar fréttir Krefur þingmenn svara um nútímavæðingu sveita landsins: „Getum ekki beðið í tíu ár eftir rafmagni“ Svavar Pétur Eysteinsson bóndi á Karlsstöðum í Berufirði, sem er ef til vill best þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló, hefur sent þingmönnum bréf þar sem hann óskar eftir upplýsingum um það hvaða áætlun sé í gangi varðandi þriggja fasa rafmagn í dreifbýli á Austurlandi. 22. ágúst 2016 22:46 Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira
Krefur þingmenn svara um nútímavæðingu sveita landsins: „Getum ekki beðið í tíu ár eftir rafmagni“ Svavar Pétur Eysteinsson bóndi á Karlsstöðum í Berufirði, sem er ef til vill best þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló, hefur sent þingmönnum bréf þar sem hann óskar eftir upplýsingum um það hvaða áætlun sé í gangi varðandi þriggja fasa rafmagn í dreifbýli á Austurlandi. 22. ágúst 2016 22:46