Reiðprinsinn sýnir ævintýragjarna krónprinsinum af Dúbaí Ísland Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. ágúst 2016 11:15 Hamdan bin Mohmmed Al Maktoum, betur þekktur sem Fazza eða krónprinsinn af Dúbaí, er í heimsókn á Íslandi og nýtur sín greinilega vel.
Hamdan bin Mohmmed Al Maktoum, betur þekktur sem Fazza eða krónprinsinn af Dúbaí, er í heimsókn á Íslandi og nýtur dvalarinnar vel ef marka má myndir sem hann hefur birt af sér á landinu. Fazza dvelur á Hilton Reykjavík Nordica en hann vaknaði rétt upp úr klukkan sex í morgun enda langur dagur framundan. Fazza, sem meðal annars er þekktur fyrir ljóðasmíð á rómantísku nótunum auk ævintýramennsku og ferðalaga, fór í hjólreiðatúr meðfram Sæbrautinni í morgun en í framhaldinu var það þyrluferð út á land. Stoppað var á Langjökli þar sem farið var inn í jökulinn (Into the Glacier) þar sem slagarinn „Er hann birtist“ með Hljómum var sunginn fyrir prinsinn. Viðeigandi, en lagið má heyra hér að neðan. Prinsinn ásamt fríðu föruneyti.Í framhaldinu var haldið að Seljalandsfossi þar sem prinsinn virti fossinn fyrir sér ofan af fjallinu í stað þess að ganga bak við fossinn. Hætti prinsinn sér ansi nærri Seljalandsá, þar sem hún fellur fram af fjallinu, ef marka má myndband sem hann birti við brúnina.Það er enginn annar en Fjölnir Þorgeirsson, reiðprinsinn og athafnamaðurinn, sem er prinsinum innan handar á meðan á dvöl hans stendur. Fór hann með prinsinn á hestbak í gær en prinsinn er í góðra manna hópi ef marka má mynd sem hann birti á Instagram um ellefuleytið og má sjá hér til hliðar.Fróðlegt verður að fylgjast með frekari Íslandsævintýrum prinsins en það má gera á Instagram-reikningi hans, Faz3.
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira