Lífið

Dreif á sig maskann og lét mana sig út í vit­leysu

Tinni Sveinsson skrifar
Snapchat-keppnin So You Think You Can Snap!, þar sem framhaldsskólar landsins etja kappi, er komin á fimmta keppnisdag.

Brynjar Steinn og Ísabella Ýrr tókust á í gær á fjórða keppnisdegi fyrir hönd Menntaskólans á Akureyri og Fjölbrautarskólans við Ármúla. Hægt er að horfa á framlag þeirra í spilaranum hér að ofan. Brynjar Steinn dreif á sig maskann og fór í skólann, sem er ekki byrjaður. Ísabella og vinkonur hennar voru manaðar í alls kyns vitleysu og fóru hamförum niðri í bæ.

Tuttugu framhaldsskólar hafa skráð sig til leiks í keppninni. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official, og fer atkvæðagreiðslan fram þar.

Tveir skólar keppa á dag og reyna snappararnir að öðlast hylli áhorfenda með fyndnum, skemmtilegum eða áhugaverðum snöppum. Áhorfendur velja svo þann sem þeim þykir betri með skjáskoti í lok dags. Sá skóli sem fær fleiri skjáskot og þar af leiðandi atkvæði kemst áfram í undanúrslit. 

Atkvæðagreiðsla fyrir þriðja keppnisdag kláraðist í gær en þar mættust Óskar Páll Davíðsson úr Framhaldsskólanum á Húsavík og Sveinn Andri Jóhannsson úr Tækniskólanum. Óskar Páll sigraði það einvígi fyrir hönd FSH og mun því halda áfram í næstu umferð.

Óskar Páll sigraði fyrir hönd FSH á þriðja keppnisdegi.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Menntaskólinn í Kópavogi mætast í dag, á fimmta keppnisdegi, og er hægt að fylgjast með einvíginu á Snapchat-reikningnum Attan_official. Við munum birta myndband af keppni þeirra hér á Vísi á mánudag.

Keppnin heldur áfram næstu vikurnar og mun Vísir fylgjast grannt með gangi mála. 

Að keppninni stendur sam­fé­lags­miðla­þátturinn Áttan, sem þeir Nökkvi Fjalar, Aron Ingi og Egill Ploder skipa. Nýherji er bakhjarl keppninnar og fær sigurvegarinn nýja Lenovo tölvu í vinning.

Dagskrá keppninnar:


22. ágúst

Fjölbrautarskóli Vesturlands vs. Menntaskólinn við Hamrahlíð (sigurvegari)

23. ágúst

Fjölbrautarskóli Mosfellsbæjar vs. Menntaskólinn á Tröllaskaga (sigurvegari)

24. ágúst

Framhaldsskólinn á Húsavík (sigurvegari) vs. Tækniskólinn

25. ágúst

Menntaskólinn á Akureyri vs. Fjölbraut við Ármúla

26. ágúst

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum vs. Menntaskólinn í Kópavogi

29. ágúst

Fjölbraut í Breiðholti vs. Menntaskólinn við Sund

30. ágúst

Kvennaskólinn vs. Verzlunarskóli Íslands

31. ágúst

Fjölbrautarskóli Snæfellinga vs. Fjölbraut í Garðabæ

1. september

Menntaskólinn í Reykjavík vs. Verkmenntaskólinn á Akureyri

2. september

Fjölbrautarskóli Suðurlands vs. Flensborgarskólinn

Sigurvegarinn hlýtur Lenovo tölvu frá Nýherja.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×