Bil milli orlofs og leikskóla enn óbrúað Sæunn Gísladóttir og Sveinn Arnarsson skrifar 13. ágúst 2016 07:00 Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður Velferðarnefndar. Fréttablaðið/Ernir
Fjöldi barna fæddra árið 2015 sem komin eru með leikskólapláss er mjög mismunandi í níu af tíu stærstu sveitarfélögum landsins. Í Fjarðabyggð er hæsta hlutfall barna á leikskóla, eða 96 prósent. Lægsta hlutfallið er hins vegar í Mosfellsbæ og á Akranesi þar sem engin börn fædd árið 2015 eru komin á leikskóla. Munur á kostnaði foreldra vegna vistunar á leikskóla eða hjá dagforeldri nemur allt að 27 þúsund krónum á mánuði hjá þeim sveitarfélögum sem gáfu upplýsingar um það, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er munurinn allt að 50 þúsund krónur í Reykjavík. Formaður Velferðarnefndar segir núverandi ríkisstjórn ekki virðast hafa stefnu í að brúa bilið milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla. Mikilvægt sé að lengja fæðingarorlofið og taka börn fyrr inn á leikskóla. Ef höfuðborgarsvæðið er einungis skoðað má sjá að hæsta hlutfall barna fæddra í fyrra á leikskólum er í Kópavogi, eða 42 prósent, fast á hæla Kópavogs kemur Garðabær með 39 prósent barna á leikskóla. Í Reykjavík eru einungis átján börn fædd árið 2015 á leikskólum, eða 1,2 prósent barna fæddra árið 2015. Kostnaður foreldra við átta tíma vistun á leikskóla í sveitarfélögunum níu nemur frá 25.280 til 37.570 króna og er mestur í Garðabæ en minnstur í Reykjavík. Kostnaður foreldra við átta tíma vistun hjá dagforeldri er á bilinu 34.805 til 60 þúsund krónur í þeim sveitarfélögunum þar sem fengust svör. Athygli vekur að í sumum sveitarfélögum hefur sveitarfélagið enga yfirsýn yfir kostnað foreldra hjá dagforeldrum. Gjaldskrá dagforeldra er frjáls en sveitarfélagið niðurgreiðir kostnað við hvert barn um vissa krónutölu, óháð því hvað dagforeldrið rukkar foreldra um. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að sumir foreldrar í höfuðborginni greiði allt að 80 þúsund krónur til dagforeldris. Samanborið við 25.280 krónur á leikskóla nemur munurinn um 55 þúsund krónum. Að sögn upplýsingafulltrúa Reykjavíkurborgar verða 142 börn í viðbót tekin inn þegar leikskólar opna á ný eftir sumarleyfi. Þá verða þau samtals 160, sem eru þó einungis 10,5 prósent barna. Einnig verða 65 börn fædd árið 2015 tekin inn í leikskóla Hafnarfjarðar á haustmánuðum, og öll börn sem fædd eru í janúar til ágúst 2015 verða tekin inn í leikskóla Garðabæjar þann 1. september. Í Mosfellsbæ og á Akranesi þar sem engin börn hafa verið tekin inn er stefnan sú að börn séu tekin inn í leikskóla frá tveggja ára aldri. Stefnt er að því að breyta innritunarreglum í Mosfellsbæ og vonast er til að hægt verði að taka á móti sextán til átján mánaða börnum á næsta ári. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar, segir það samstarfsverkefni ríkisstjórnar og sveitarfélaga að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólainntöku. „Núverandi ríkisstjórn virðist ekki hafa stefnu í þessu því hún hefur stytt fæðingarorlofið og ekki treyst sér til að lengja það aftur þrátt fyrir bætta stöðu ríkissjóðs. Ríkið þarf að lengja fæðingarorlofið og sveitarfélögin þurfa að taka börnin fyrr inn. Þá kemur spurningin hvort við viljum hafa tólf mánaða fæðingarorlof eða átján mánaða fæðingarorlof.“ Sigríður Ingibjörg óttast áhrif núverandi stöðu á fæðingatíðni. „Fæðingatíðni hefur lækkað undanfarið, ekki síst vegna þess að það er orðið dýrara að eignast börn. Fæðingarorlofið hefur staðið í stað í þrjú ár. Það er mikilvægt fyrir okkar samfélag að fólk vilji eignast börn og það sé öryggi fyrir fjölskyldur varðandi dagvistun fyrir minnstu börnin.“Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Fleiri fréttir Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sandra tekin við af Guðbrandi Flughált í höfuðborginni og víðar um land Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Sjá meira