Vilja malbikshrauka í Kapelluhrauni í burtu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 15. ágúst 2016 08:00 Söfnunin hefur staðið yfir lengi og mikið magn er komið á svæðið. Mynd/Hafnarfjarðarbær
Skipulags- og byggingaráð Hafnarfjarðar hefur bannað geymslusvæði í Kapelluhrauni í bæjarlandinu að taka á móti malbiksúrgangi. Telja bæjaryfirvöld geymslusvæðið ekki hafa leyfi til að taka á móti þessum úrgangi. Framkvæmdastjóri geymslusvæðisins telur sig hins vegar hafa haft leyfi bæjarverkfræðings.Ólafur Ingi Tómason formaður skipulagsnefndar HafnarfjarðarGeymslusvæði ehf. er með 35 hektara svæði í Kapelluhrauni sem hefur verið skipulagt undir iðnaðarsvæði. Þar tók fyrirtækið á móti miklu magni malbiks sem á að endurnýta á götur borgarinnar. „Þetta er nokkuð mikið af efni sem kemur af götum borgarinnar og á að endurnýta í malbik,“ segir Ástvaldur Óskarsson, framkvæmdastjóri Geymslusvæðis. „Við töldum okkur vera með samkomulag við bæjarverkfræðing, það var munnlegt. Ég hafði allavega þann skilning á málinu að þetta væri í lagi. Hér er ekki um rusl að ræða heldur endurnýtanlegt efni,“ segir Ástvaldur. „Ef þetta er svona eitrað efni þá eru allar götur borgarinnar baneitraðar, það er bara þannig.“ Ólafur Ingi Tómasson, formaður skipulags- og byggingaráðs, segir fyrirtækið hafa óskað eftir leyfi til þess að taka við þessum efnum á fyrri hluta síðasta árs en ekki fengið. Síðan hafi komið í ljós fyrir stuttu að fyrirtækið hefði hafið efnissöfnun. Því hafi ekki verið annað hægt að gera en að stöðva framkvæmdir. Skipulags- og byggingaráð beindi því svo til bæjaryfirvalda að efnismóttakan yrði kærð til lögreglu og Umhverfisstofnunar. „Já, við teljum þetta alvarlegt mál. Þarna rennur mikið vatn og við þurfum að gæta að okkur þegar svona miklu efni er safnað saman,“ segir Ólafur Ingi. „Þetta verður síðan tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.“ Ástvaldur vonar að hægt verði að ná sátt í málinu áður en til dómstóla kemur. En það sé þá undir bæjaryfirvöldum komið. „Auðvitað er æskilegra að við náum sátt, en það fer þá eftir lipurð málsaðila og þá aðallega bæjaryfirvalda. Við munum ræða við bæjarverkfræðing og fara yfir stöðuna,“ segir Ástvaldur.Fréttin birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira