Lífið

Fór í brúðkaupsferðina án eiginkonunnar

Birta Svavarsdóttir skrifar
"Svona erum við konan að ferðast saman þessa dagana“
"Svona erum við konan að ferðast saman þessa dagana“ Faizan Patel
Það er fátt rómantískara en að fara í brúðkaupsferð til Ítalíu með ástinni sinni, en hvað ef aðeins annar aðilinn kemst í ferðina?

Það var raunin fyrir indverska ljósmyndarann Faizan Patel, en aðeins tveimur dögum fyrir áætlaðan brottfarardag kom í ljós að konan hans, Sana, hafði týnt vegabréfinu sínu.

Óvenjuleg paramynd við skakka turninn.Faizan Patel
Það virtist þó ekki næg ástæða til að fresta ferðinni, en Patel tók til sinna eigin ráða við að hafa konu sína meðferðis, að minnsta kosti í anda. 8. ágúst tvítaði Patel mynd af sér í lest, í sætinu við hlið hans hafði hann hengt upp mynd af eiginkonu sinni.

Til mikillar lukku fyrir hjónakornin sá utanríkisráðherra Indlands, Sushma Swaraj, myndina og tvítaði til baka að Sana gæti haft samband við hana „svo að hún gæti séð til þess að þau yrðu saman í næsta lestarsæti.“

Það urðu því miklir fagnaðarfundir þann 12. ágúst þegar eiginkonan mætti loksins á svæðið. „Takk fyrir Sushma!“ tvítaði Patel ásamt mynd af sér og Sönu í faðmlögum.

Hér fyrir neðan má svo sjá nokkur vel valin tvít sem segja frá svaðilför hjónakornanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.