Vara við sundpokum sem þrengt geta að öndunarvegi barna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. ágúst 2016 10:14 VÍS varar við sundpokum sem geta þrengt að öndunarvegi barna. mynd/vís
VÍS varar fólk við sundpökum sem eru með riflásum á böndunum sem gefa eftir ef átak kemur á bandið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu en þar segir að dæmi séu um að böndin hafi farið utan háls barna og þrengt að öndunarvegi þeirra. Slíkt slys varð á Akureyri í sumar þegar drengur var að hjóla heim til sín með sundpoka á bakinu. Hann hafði í óðagoti sett böndin þannig að þegar strekktist á þeim runnu þau utan um háls hans. Þegar böndin drógust svo inn í gjörð á hjólinu þrengdu þau hratt að öndunarveginum.mynd/vísÞorvaldur Þorsteinsson faðir drengsins segir að hann hafi ekki sjálfur getað leyst flækjuna sem komin var um hálsinn en það hafi orðið honum til happs að tvær eldri konur hafi borið að þar sem drengurinn átti orðið erfitt með andardrátt. „Konurnar losuðu böndin í hvelli og vil ég þakka þeim kærlega fyrir snarræðið. Jafnframt minni ég foreldra á að ræða þessa hættu við börn sín og brýna fyrir þeim að þau vefji böndunum aldrei utan um hálsinn,“ er haft eftir Þorvaldi í tilkynningu VÍS. Til að minnka hættu á svona slysum getur verið skynsamlegt að stytta böndin á pokunum svo þau flækist síður í eitthvað. Þannig sitja pokarnir einnig bæði þægilegar og ofar á baki barnanna.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Játar innbrot í búin Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent Fleiri fréttir Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Sjá meira
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent