Lífið

„Ætlum að stela þrumunni á Menningarnótt aftur“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hljómsveitin HAM kemur saman á Menningarnæturtónleikum X977 í portinu fyrir aftan Bar 11 á laugardaginn. Tónleikarnir hefjast klukkan 15 og standa fram að flugeldasýningu um klukkan 23.

Auk HAM munu Dimma, Júníus Meyvant, XXX Rottweiler, Úlfur Úlfur, Emmsjé Gauti, Gísli Pálmi, Axel Flóvent, Kontinuum, Hórmónar og Cyber trylla lýðinn.

„Við ætlum að stela þrumunni á Menningarnótt aftur,“ segir Ómar Úlfur Eyþórsson, útvarpsmaður á X-inu, sem kemur að skipulagningu tónleikanna. Hann segist afar spenntur fyrir deginum í heild enda hafi tónleikarnir verið frábærlega sóttir undanfarin ár.

Ómar Úlfur Eyþórsson bíður spenntur eftir Partýbæ með HAM.
Framboðið á tónleikum á Menningarnótt er mikið því til viðbótar verður Bylgjan með 30 ára afmælisgarðpartý í Hljómskólagarðinum þar sem Mezzoforte og Bítlavinafélagið koma meðal annarra fram. Þá verður Rás 2 með Tónaflóð á Arnarhóli frá 20-23.

HAM mun ljúka tónleikunum á laugardaginn og Ómar hlakkar sérstaklega til þess.

„Partýbær og svo flugeldar. Þetta verður legendary.“

Sérstaka athygli vakti um árið þegar Russell Crowe tróð upp á tónleikunum og bauð upp á rándýran leynigest, Patti Smith. Tóku þau saman „Because the night“ sem hitti í mark hjá tónleikagestum.

Russel Crowe lét vel af tónleikunum þrátt fyrir baráttu við hljóðnemann í viðtali á Stöð 2 fyrir fjórum árum.


Ókeypis er á tónleikana sem hefjast klukkan 15 en fyrir þá sem eiga ekki heimangengt þá verður hægt að hlusta á þá í beinni útsendingu á X-inu, 977. 

Dagskrána má sjá að neðan.

Axel Flóvent 15:00 - 15:30

Júníus Meyvant 15:40 - 16:10

Cyper 16:20 - 16:40

Hormónar 17:00 - 17:20

Kontinuum 17:40 - 18:10

Úlfur Úlfur 18:20 - 18:50

Emmsjé Gauti 19:00 - 19:30

Gísli Pálmi 19:00 - 19:30

Dimma 20:30 -21:10

XXX Rottweiler 21:20 - 21:50

HAM 22:00 - 22:40






Fleiri fréttir

Sjá meira


×