Áfengis- og vímuefnaneysla er ekki sjúkdómur Arnþór Jónsson skrifar 4. ágúst 2016 06:00 Mikil gróska hefur verið í umræðu um fíkn, bæði hér heima og erlendis, og ástæða er til að fagna því. Málefnið er brýnt. Landlæknir Bandaríkjanna, dr. Vivek Murthy, flutti ávarp þann 19. apríl síðastliðinn á sérstakri hringborðsráðstefnu í tengslum við fund Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York um vímuefnavandann. Þar hvatti hann aðildarríkin til þess að viðurkenna vímuefnamisnotkun sem langvinnan sjúkdóm og lagði áherslu á að auka, í samræmi við það, viðbrögð hvað varðar lýðheilsu og heilbrigðisþjónustu. Einnig ræddi hann mikilvægi þess að úrræði við fíkn á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu stæðu öllum til boða, að meðferðin styddi þá til endurreisnar sem eru á batavegi – án mismununar og án þess að þurfa að sæta ámæli eða fordómum. Áfengisneysla og önnur vímuefnaneysla er ekki sjúkdómur. Áfengis- og vímuefnaneysla er ekki heldur birtingarmynd eða afleiðing af undirliggjandi sjúkdómi. Hjá okkur Íslendingum, og í þeim samfélögum sem við berum okkur gjarnan saman við, er áfengis- og vímuefnaneysla þvert á móti sjálfsögð og eðlileg, þ.e.a.s. hófleg neysla telst hluti af eðlilegu lífi fullorðinna og heilsuhraustra manna og kvenna. Áfengi hefur lengi verið löglegt vímuefni og fornleifar og ritaðar heimildir benda til þess að vín hafi verið framleitt í að minnsta kosti 8.000 ár. Vín er nefnt í Hómerskviðum og í Hávamálum og Íslendingasögum má lesa um drykkju og ofdrykkju mjaðar. Í dag er áfengi beinlínis markaðssett til að nota við skemmtanir og alls konar önnur tækifæri. Það sama gildir um ólögleg vímuefni þó markaðssetning þeirra hafi verið með öðrum formerkjum.Áfengissýki Langflestir hér á okkar góða landi nota áfengi eða önnur vímuefni einhvern tíma á sinni ævi en hluti hópsins missir þó stjórn á neyslunni. Áfengissýki hefur verið fylgifiskur áfengisneyslunnar alla tíð. Áfengisvandi er talinn hafa verið ein af meginástæðum fyrir hnignum Rómaveldis og áfengisbann Múhameðs í Kóraninum var sett vegna hræðilegs áfengisvandamáls sem herjaði á araba á þeim tíma. Sá hluti hópsins sem missir stjórn á vímuefnaneyslu sinni verður veikur – fær fíknsjúkdóm sem er langvinnur heilasjúkdómur og orsakast af erfða- og umhverfisþáttum. Líffræðilegir þættir og uppeldislegir þættir, aðrir sjúkdómar, heilaskaði og aldur og kyn hafa einnig áhrif. Sjúkdómurinn herjar á venjulegt fólk, þverskurð samfélagsins og er algengur miðað við aðra sjúkdóma. Í umræðu um fíkn er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að hjá SÁÁ er til meðferð við áfengis- og vímuefnafíkn sem virkar vel. Allt of margir bíða of lengi með að leita sér hjálpar, sérstaklega konur. Meðferð SÁÁ er byggð á traustri þekkingu á sviði heilbrigðisvísinda og allur aðbúnaður er til fyrirmyndar. Meðferðin hefur auk þess verið afglæpavædd í 39 ár – allir sem þurfa fá heilbrigðisþjónustu, og skiptir þá engu hvort þeir neyta ólöglegra eða löglegra vímuefna. Enginn lendir í félagslegum vanda vegna meðferðarinnar eða sætir ámæli og fordómum. Þannig höfum við Íslendingar haft það í bráðum 40 ár – eins og Landlæknir Bandaríkjanna er að óska eftir núna. Látið ekki eigin fordóma eða úrtöluraddir telja úr ykkur kjarkinn. Ef þú eða einhver sem þér þykir vænt um þarf aðstoð vegna áfengis- eða vímuefnavanda hafðu þá samband. Kíktu líka á vefinn okkar. SÁÁ tekur ævinlega vel á móti sínu fólki. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann Skoðun Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs Finnur Ulf Dellsén Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson Skoðun Baslað í fyrirmyndarbænum Karl Pétur Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann skrifar Skoðun Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs Finnur Ulf Dellsén skrifar Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir skrifar Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson skrifar Sjá meira
Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar
Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar