Eric Clapton landaði þeim langstærsta í Vatnsdal Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 8. ágúst 2016 12:06 Laxinn var hvorki meira né minna en 108 sentímetrar. Mynd/vatnsdalsa.is
Tónlistarmaðurinn Eric Clapton datt heldur betur í lukkupottinn við veiði í Vatnsdalsá síðastliðinn föstudag, þegar hann landaði glæsilegum laxi. Fiskurinn var engin smásmíði, eða 108 sentímetrar og 28 pund. „Já þetta var stór fiskur og tók um tvo og hálfan klukkutíma. Stærsti fiskurinn á Vatnsdal,“ segir Sturla Birgisson, leiðsögumaður Clapton, í samtali við Vísi. Tónlistarmaðurinn góðkunni var einstaklega ánægður með fenginn. „Þetta er stærsti fiskur sem hann hefur landað, langstærsti,“ segir Sturla. Clapton notaði flugu sem kallast Night Hawk í stærð 14 og virðist það heldur betur hafa borgað sig. Til að byrja með lét laxinn lítið fyrir sér fara en áttaði sig fljótt á að ekki var allt með felldu og reyndi að forða sér. Við tók um kílómeters langur eltingaleikur.Sturla Birgisson, leiðsögumaður Clapton, er hér með laxinn góða.Mynd/vatnsdalsa.isDraumalax Bæði laxinn og tónlistarmaðurinn voru uppgefnir eftir eltingaleikinn, en jöfnuðu sig innan tíðar og laxinn kvaddi veiðimenn með vænni skvettu. Eins og fyrr segir er þetta stærsti fiskur sem Clapton hefur landað en hann hefur verið að koma hingað til lands í veiði í 15 ár. „Hann var fyrst í Laxá á Ásum og var í nokkur ár þar og svo er hann að veiða núna í Vatnsdal,“ segir Sturla. Aðspurður segist Sturla ekki hafa áhyggjur af því að Clapton hætti að koma eftir þennan draumalax.
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Fleiri fréttir Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Sjá meira