Vilja að sveitarfélög hafi skýran forkaupsrétt þegar aflaheimildir eru seldar Jóhann K. Jóhannsson skrifar 8. ágúst 2016 23:22
Samtök sjávarútvegssveitarfélaga vilja að sveitarfélög hafi skýran forkaupsrétt þegar skip eða aflaheimildir eru seldar út fyrir sveitarfélög. Formaður samtakanna segir það til dæmis vera áhugaverða leið að tengja aflaheimildir við fiskvinnslu en ekki við báta. Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, greindi frá því í fréttum Stöðvar 2 á dögunum að þörf væri á breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu á Íslandi. Ljóst er að bæjarfélög á landsbyggðinni standa höllum fæti gagnvart sölu á kvóta líkt og gerðist þegar Hafnarnes seldi kvóta frá Þorlákshöfn til HB Granda. Við það tækifæri sagði Jón: „Þetta er bara enn og aftur áminning um þann veikleika sem er í kerfinu okkar í dag, að sveitarfélög geta ekki varið aflaheimildir með því að hafa einhvern konar forkaupsrétt að þeim. Við þurfum auðvitað að framkvæma breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.“Skýr forkaupsréttur, ekki sýndarréttur Á fundi stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn var 4. ágúst síðastliðinn var bókað að stjórn samtakanna leggi áherslu á að sveitarfélög hafi skýran forkaupsrétt þegar skip með aflaheimildum, eða hlutir í lögaðila með skip með aflaheimildum, eru seld til aðila með heimilisfesti í öðru sveitarfélagi. Róbert Ragnarsson, formaður Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, segir ljóst er að núgildandi lagaákvæði veita sveitarfélögum litla vörn þegar aflaheimildir eru seldar úr viðkomandi sveitarfélagi. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir sveitarfélögin að hafa þennan rétt algerlega virkan, en ekki svona sýndarrétt eins og í núgildandi löggjöf, líkt og hefur sýnt sig undanfarin ár. Við höfum veitt umsagnir áður og fjallað áður um forkaupsréttarmál. Það var mikil umfjöllun um málið í Vestmannaeyjum fyrir nokkrum árum síðan. Þetta mál í Þorlákshöfn er kveikjan að þessari bókun sem við leggjum fram í síðustu viku. Þarna er um að ræða að næstum einn þriðji af aflaheimildunum er seldur úr sveitarfélaginu, ofan á önnur viðskipti sem hafa farið fram á undanförnum árum. Þetta er gríðarlega mikið mál fyrir Þorlákshöfn,“ segir Róbert.Neyðarúrræði Stjórnin bendir á að forkaupsréttur hljóti að vera neyðarúrræði þegar miklir samfélags- og atvinnuhagsmunir eru í húfi og ekki megi draga úr sóknarmöguleikum útgerða og byggðarlaga sem vilja sækja aflaheimildir til að byggja upp útgerð á tilteknum stað. Byggðalög með útgerð í vexti þurfi að hafa möguleika til vaxtar. „Þetta eru gríðarlega miklar fjárfestingar og sveitarfélög tína ekkert þessa peninga upp úr vasanum. Á þeim hvílir líka sú skylda að finna kaupanda inni í sveitarfélaginu strax.“ Sjá má fréttina í heild sinni í spilaranum að ofan.
Tengdar fréttir Formaður SFS segir óalgegnt að kvóti sé færður milli kjördæma Jens Garðar Helgason segir fyrirtæki í sjávarútvegi yfirleitt sýna mikla samfélagslega ábyrgð. 27. júlí 2016 14:43 Bæjarstjóri Ölfuss: „Kjaftshögg að aflaheimildirnar fari“ HB Grandi hefur fest kaup á aflaheimildum upp á tæpa fjóra milljarða króna af Hafnarnesi VER í Þorlákshöfn. 26. júlí 2016 17:59 Framkvæmdastjóri Hafnarness: Salan framkvæmd til að halda rekstri áfram „Að láta í veðri vaka að þetta hafi verið auðveld ákvörðun hjá okkur er í besta falli ósmekklegt,“ ritar Ólafur Hannesson. 8. ágúst 2016 20:57 Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira
Formaður SFS segir óalgegnt að kvóti sé færður milli kjördæma Jens Garðar Helgason segir fyrirtæki í sjávarútvegi yfirleitt sýna mikla samfélagslega ábyrgð. 27. júlí 2016 14:43
Bæjarstjóri Ölfuss: „Kjaftshögg að aflaheimildirnar fari“ HB Grandi hefur fest kaup á aflaheimildum upp á tæpa fjóra milljarða króna af Hafnarnesi VER í Þorlákshöfn. 26. júlí 2016 17:59
Framkvæmdastjóri Hafnarness: Salan framkvæmd til að halda rekstri áfram „Að láta í veðri vaka að þetta hafi verið auðveld ákvörðun hjá okkur er í besta falli ósmekklegt,“ ritar Ólafur Hannesson. 8. ágúst 2016 20:57