Schlitterbahn-slysið: Drengurinn lést af áverkum á hálsi Birta Svavarsdóttir skrifar 9. ágúst 2016 11:43 Verrückt rennibrautin er yfir fimmtíu metrar á hæð. flickr/adele chen
Línur eru teknar að skýrast í máli tíu ára drengs sem lést í hæstu vatnsrennibraut í heimi nú á sunnudaginn. Fjallað var um slysið í gær, sem átti sér stað í leiktækinu „Verrückt“ í Schlitterbahn-garðinum í Kansas í Bandaríkjunum. Garðurinn í Kansas er einn fimm garða sem Schlitterbahn-keðjan rekur í Bandaríkjunum. Honum hefur verið lokað á meðan lögreglan rannsakar málið. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá lögreglu lést hinn tíu ára gamli Caleb Thomas Schwab af áverkum á hálsi, en háls- og höfuðáverkar eru algengustu tegundir meiðsla sem börn verða fyrir í leiktækjum skemmtigarða. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var af Barnaspítalanum í Columbus, Ohio árið 2013.Drengurinn var í tækinu með tveimur fullorðnum konum, en þær hlutu báðar minniháttar áverka á andliti. Óvíst er hvort þau hafi náð að uppfylla þau þyngdarskilyrði sem gerð eru til farþega rennibrautarinnar, en samkvæmt heimasíðu fyrirtækisins verður samanlögð þyngd farþega að vera á milli 180 og 230 kíló. Einnig hafa sjónarvottar sagt að belti tækisins hafi ekki verið í lagi daginn sem slysið átti sér stað. Lögreglan í Kansas hefur neitað að tjá sig frekar um málið.
Tengdar fréttir 10 ára drengur lést í vatnsrennibrautagarði í Bandaríkjunum Skemmtigarðinum hefur verið lokað á meðan unnið er að rannsókn málsins. 8. ágúst 2016 10:50 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Sjá meira
10 ára drengur lést í vatnsrennibrautagarði í Bandaríkjunum Skemmtigarðinum hefur verið lokað á meðan unnið er að rannsókn málsins. 8. ágúst 2016 10:50