Unnsteinn Manuel vill ekki stríð Eyjamanna og fólks úr miðbænum Stefán Þór Hjartarson skrifar 23. júlí 2016 07:00 Unnsteinn Manuel Stefánsson er söngvari hljómsveitarinnar Retro Stefson. Vísir/Anton Brink
Unnsteinn Manuel Stefánsson talar máli tónlistarmanna sem tóku þá ákvörðun síðastliðinn fimmtudag að hætta við að spila á Þjóðhátíð vegna afstöðu Páleyjar Borgþórsdóttur, lögreglustjóra í Vestmannaeyjum, varðandi kynferðisbrot. Mikil ónægja er meðal margra í samfélaginu yfir ákvörðun Páleyjar um að halda upplýsingum um fjölda kynferðisbrota sem upp kunna að koma á Þjóðhátíð leyndum. Þessi vinnubrögð voru fyrst tilkynnt fyrir hátíðina í fyrra og hyggst lögreglustjórinn viðhalda því vinnulagi þetta árið. Sjö hljómsveitir og tónlistarmenn gáfu það út að þeir myndu ekki spila á hátíðinni héldist ástandið óbreytt.Fyrir þessum hópi hefur farið Unnsteinn Manuel Stefánsson úr hljómsveitinni Retro Stefson. Segir hann að þessi hópur tónlistarmanna hafi reynslu af því að spila á ótal hátíðum um allan heim og á engri þeirra hafi kynferðisafbrot verið liðin. Hér sé stórt vandamál á ferð sem verði að tala um og bregðast við. „Við verðum að geta komið á svið með góðri samvisku. Við megum ekki líta á þetta sem stríð milli Eyjamanna og fólks í miðbænum. Umræðan hefur oft farið á það plan, einfaldlega vegna þess að fólk er hrætt við að taka þessa umræðu. Við áttum góðan fund með Elliða í gær. Það eru allir sammála um að það beri að gera sem best í þessu máli. Áður en ég fór á Þjóðhátíð fyrst þá hafði ég fordóma fyrir hátíðinni, ég viðurkenni það. Síðan fór ég árið 2012 og vá – þetta er stærsta hátíðin á Íslandi, þetta er alvöru þjóðhátíð, þarna er fullt af fjölskyldufólki að skemmta sér – og þá hurfu flestir fordómarnir hjá mér en það sat alltaf í mér að þessi umræða hefur aldrei verið tekin,“ segir Unnsteinn um ákvörðun sína og hinna tónlistarmannanna um að hætta við að koma fram á Þjóðhátíð síðastliðinn fimmtudag. Eftir fund fulltrúa listamanna, formanns þjóðhátíðarnefndar og fulltrúa bæjaryfirvalda var ákveðið að grípa til táknrænna og raunverulegra aðgerða til þess að koma í veg fyrir nauðganir á útihátíðum á borð við Þjóðhátíð. Hrint verður af stað átaki gegn kynferðisofbeldi og settur saman starfshópur. Óskað verður eftir fulltrúa frá Stígamótum í hópinn. Í kjölfar þessa munu tónlistarmennirnir sem síðastliðinn fimmtudag ákváðu að draga sig út úr hátíðarhöldunum koma fram á hátíðinni. „Við getum ekki stýrt því hvernig lögreglan vinnur og við ætlum ekkert að vera að halda henni í gíslingu. Það er áskorun frá okkur og Elliða að lögregluumdæmi hér í landinu samræmi verklag sitt varðandi upplýsingaskyldu og finni út hver er besta leiðin til þess að fara að þessum málum,“ sagði Unnsteinn eftir fundinn. „Við fundum mikinn vilja frá Vestmannaeyjabæ og þjóðhátíðarnefnd til þess að gera betur.“ En líkt og áður sagði þá verður stofnaður sérstakur starfshópur sem mun marka sér stefnu til næstu fimm ára og einnig munu listamenn, björgunarsveitir og aðrir gæsluaðilar á hátíðinni taka þátt táknrænni athöfn vegna átaksins. Mun hún fara fram á föstudagskvöldi hátíðarinnar. „Það er í rauninni mesti sigurinn fyrir okkur að umræðan sé tekin en ekki þögguð niður,“ segir Unnsteinn að lokum.
Tengdar fréttir Elliði hefur trú á að komist verði að sameiginlegri niðurstöðu Útilokar ekki að breytingar verði gerðar. 22. júlí 2016 12:43 Páley stendur föst á sinni afstöðu Fundaði með hljómsveitunum í gær og útskýrði afstöðu sína. Málið virðist vera stefna í pattstöðu. 22. júlí 2016 11:47 Hljómsveitirnar funda með Þjóðhátíðarnefnd Krafa sveitanna er að lögregluyfirvöld í Vestmannaeyjum temji sér þau vinnubrögð sem Landsspítalinn og Stígamót telji vera æskilegust. 22. júlí 2016 13:33 Skoðanakönnun um uppnámið vegna Þjóðhátíðar í Eyjum Veður Páley lögreglustjóri villu og svíma eða er hún á réttu róli með ákvörðun sína? 22. júlí 2016 13:11 „Auðvitað hlýtur þetta að hafa áhrif á orðspor þjóðhátíðar“ Talsmaður þjóðhátíðarnefndar er búinn að bjóða fulltrúum neyðarmóttökunnar og Stígamóta til Eyja. 22. júlí 2016 12:58 Helgi Hrafn mun aftur fara fram á upplýsingar um kynferðisbrot á þjóðhátíð Fyrirspurn píratans leiddi í ljós að fimm kynferðisbrot sem áttu sér stað á þjóðhátíð í fyrra voru tilkynnt til lögreglu. 22. júlí 2016 11:07 Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Seld sú hugmynd að grannur líkami sé það eina sem er aðlaðandi Lífið Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Menning Munur er á manviti og mannviti Menning „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Lífið Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Lífið Bein útsending: Litlu jól Blökastsins Jól Fleiri fréttir Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði „Mamma, ég gat þetta“ Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Gummi skíthræddur við Sigurjón Kjartans Þessi stóðu upp úr hjá Spotify í ár „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ „Lendir auðvitað í því að vera alltaf málaður upp sem voðalega vondur“ Sjá meira
Elliði hefur trú á að komist verði að sameiginlegri niðurstöðu Útilokar ekki að breytingar verði gerðar. 22. júlí 2016 12:43
Páley stendur föst á sinni afstöðu Fundaði með hljómsveitunum í gær og útskýrði afstöðu sína. Málið virðist vera stefna í pattstöðu. 22. júlí 2016 11:47
Hljómsveitirnar funda með Þjóðhátíðarnefnd Krafa sveitanna er að lögregluyfirvöld í Vestmannaeyjum temji sér þau vinnubrögð sem Landsspítalinn og Stígamót telji vera æskilegust. 22. júlí 2016 13:33
Skoðanakönnun um uppnámið vegna Þjóðhátíðar í Eyjum Veður Páley lögreglustjóri villu og svíma eða er hún á réttu róli með ákvörðun sína? 22. júlí 2016 13:11
„Auðvitað hlýtur þetta að hafa áhrif á orðspor þjóðhátíðar“ Talsmaður þjóðhátíðarnefndar er búinn að bjóða fulltrúum neyðarmóttökunnar og Stígamóta til Eyja. 22. júlí 2016 12:58
Helgi Hrafn mun aftur fara fram á upplýsingar um kynferðisbrot á þjóðhátíð Fyrirspurn píratans leiddi í ljós að fimm kynferðisbrot sem áttu sér stað á þjóðhátíð í fyrra voru tilkynnt til lögreglu. 22. júlí 2016 11:07