Fótbolti

Grunsamlegur pakki sprengdur upp fyrir utan hótel franska landsliðsins

Anton Ingi Leifsson skrifar
Frakkar fagna sigrinum á Þjóðverjum.
Frakkar fagna sigrinum á Þjóðverjum. vísir/getty
Lögreglan neyddist til að rýma svæðið í kringum hótel franska landsliðsins í knattspyrnu fyrr í dag.

Grunsamleg pakkning fannst fyrir utan hótel frönsku leikmannana og starfsliðs, en lögreglan var fljót til og rýmdi svæðið.

Há sprengist heyrðist svo stuttu síðar, en talið er að það hafi verið lögreglan að sprengja upp pakkann undir eftirliti.

Frakkland mætir Portúgal í úrslitaleik Evrópumótsins í kvöld, en Frakkarnir leika á heimavelli í kvöld.

Ísland datt út fyrir Frakklandi í 8-liða úrslitum EM, en Ísland tapaði leiknum 5-2 þar sem Kolbeinn Sigþórsson og Birkir Bjarnason voru á skotskónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×