Fótbolti

Hetjan Éder: Þetta var verðskuldað

Anton Ingi Leifsson skrifar
Éder fagnar sigurmarkinu.
Éder fagnar sigurmarkinu. vísir/getty
„Þetta var frábær stund. Okkar lið lagði virkilega mikið á sig og vissum að portúgalska fólkið væri á bakvið okkur," sagði hetja Portúgala, Éder, í úrslitaleik EM í kvöld.

„Við börðumst með gríðarlegum vilja, við vorum frábærir. Ég held við eigum þennan titil skilið eftir það sem við lögðum í þetta; bæði leikmenn og starfslið."

Éder hefur ekki verið iðinn við að skora fyrir Portúgal, en þetta var hans þriðja landsliðsmark í rúmlega þrjátíu leikjum fyrir þjóð sína.

„Portúgal hefur viljað vinna þennan bikar svo lengi. Þetta er frábært og verðskuldað. Hamingjuóskir til allra," sagði hetjan að lokum.

Þessi fyrrum samherji Gylfa Sigurðssonar kom inná sem varamaður og tryggði Portúgal svo sigur, en þetta verður líklega hans stærsta mark á öllum ferlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×