Fótbolti

Clattenburg dæmir úrslitaleikinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Clattenburg að störfum á EM.
Clattenburg að störfum á EM. vísir/getty
Enski dómarinn Mark Clattenburg lýkur eftirminnilegu ári með því að dæma úrslitaleik EM á sunnudag.

Clattenburg dæmdi einnig úrslitaleik Meistaradeildarinnar og úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í ár.

Úrslitaleikurinn er á milli heimamanna í Frakklandi og Portúgal.

Clattenburg er orðinn 41 árs gamall og ferill hans mun ná hápunkti í þessum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×