Eftir að komast yfir með marki Jóns Daða Böðvarssonar á 18. mínútu fékk íslenska liðið á sig jöfnunarmark í seinni hálfleik þegar það, einu sinni sem oftar á mótinu, bakkaði of aftarlega og bauð hættunni heim. Eins og alltaf varðist íslenska liðið vel og Hannes var meira og minna frábær í markinu fyrir utan ein sprellitilþrif sem kostuðu næstum mark. En í gær var stundin okkar, stund strákanna, stund íslensku þjóðarinnar.
Þegar Arnór Ingvi Traustason skoraði sigurmarkið í uppbótartíma eftir sendingu frá Theodór Elmari Bjarnasyni ætlaði allt um koll að keyra hjá íslensku stuðningsmönnunum. Fullorðið fólk bókstaflega grét í stúkunni og ekki hættu tárin að flæða þegar pólski dómarinn flautaði til leiksloka. Litla Ísland komið áfram og það með sigri þegar jafntefli var nóg. Strákarnir unnu fyrir þessu, sköpuðu sér sína eigin heppni og skrifuðu enn og aftur nýjan kafla í íslenska fótboltasögu.

Skipta um þjóðhátíðardag
„Strákarnir börðust fyrir sigurmarkinu. Við vorum heppnir á köflum en sýndum frábært hugarfar út leikinn. Það voru margir þreyttir í lokin enda höfum við spilað nánast á sama liðinu í keppninni. En, eins og við höfum alltaf sagt, við erum stoltir af leikmönnunum okkar,“ sagði Heimir Hallgrímsson, annar landsliðsþjálfara Íslands, eftir leikinn.
Heimir og Lars gerðu enga breytingu á liðinu sem var búið að koma Íslandi í þessa stöðu. Þetta sama lið byrjaði leikinn aftur á móti mun betur en síðustu leiki og greinilegt að menn voru orðnir langþreyttir á að gera ekkert nema verjast. Jóhann Berg Guðmundsson var hársbreidd frá því að skora eitt af mörkum mótsins eftir nokkrar sekúndur.
Saga íslenska liðsins er einstök og ekki að ástæðulausu að kastljós heimsins er á strákunum okkar. Sagan er stór og litlu sögurnar í stóru bókinni svo magnaðar. Fyrra markið í gær skoraði Jón Daði Böðvarsson. Selfyssingurinn sem átti ekki fyrir æfingagjöldum þegar hann var lítill og féll með Selfossi fyrir aðeins fjórum árum úr Pepsi-deildinni skoraði fyrir Ísland í stærsta leik liðsins frá upphafi á Stade de France. Einstakur strákur í einstöku liði. Fyrir utan það var Jón, ásamt Kára Árnasyni, besti maður vallarins.
„Ég held að þýðing þessa sigurs fyrir íslensku þjóðina sé örugglega að nú sé vilji til þess að breyta þjóðhátíðardeginum úr 17. júní í 22. júní,“ sagði Heimir Hallgrímsson eftir leikinn.

England, Nice
„Þegar við skoruðum sigurmarkið fór ég bara í eitthvað „zone“. Ég man ekki neitt. Svo eftir leikinn fer maður og fagnar með fólkinu og sér þar í stúkunni litla frænda sinn, besta vin, mömmu og bróður. Þetta er nákvæmlega það sem maður vill,“ sagði Aron Einar við blaðamenn eftir leik en fyrirliðinn, sem er að spila meiddur og fórna sér fyrir liðið, var enn í geðshræringu þegar hann reyndi að útskýra líðan sína.
Ekki nóg með að Ísland hafi komist áfram heldur eru sigurlaunin eins sæt og þau verða. Í fyrsta sinn í sögunni mætir Ísland stórliði Englands með allar sínar stjörnur úr ensku úrvalsdeildinni. Í hvert sinn sem dregið er til undankeppni HM eða EM vonast íslenska þjóðin eftir að að mæta Englandi. Fyrst biðin er búin að vera svona löng var um að gera að gera þetta með stæl og mæta Englandi bara á stórmóti.
„Það horfa allir Íslendingar á ensku úrvalsdeildina. Það er okkar deild og það þekkja allir þessa leikmenn sem við erum að fara að spila við. Það verður sérstaklega gaman að mæta Englandi á stórmóti því ég hef aldrei spilað á móti Englandi,“ sagði Aron Einar Gunnarsson.