Sigursteinn um nýjustu vendingar í Guðmundarmálinu: „Hefði strax átt að vekja upp miklar grunsemdir“ Birgir Olgeirsson skrifar 16. júní 2016 13:12 Sigursteinn Másson framleiddi og skrifaði handrit að myndinni Aðför að lögum þar sem þetta stærsta sakamál Íslands er krufið til mergjar. Vísir „
Ég hef ákveðnar hugmyndir um það hvað er á seyði,“ segir Sigursteinn Másson um þær handtökur og yfirheyrslur sem lögreglan hefur framkvæmt að beiðni setts saksóknara vegna vinnu endurupptökunefndar Guðmundar- og Geirfinnsmálsins. Sigursteinn framleiddi og skrifaði handrit að myndinni Aðför að lögum þar sem þetta stærsta sakamál Íslands er krufið til mergjar. Í vikunni handtók lögreglan tvo menn og yfirheyrði þá vegna málsins. Morgunblaðið sagði frá því að lögreglan hefði leitað á heimili sambýliskonu annars tveggja mannanna í fyrradag. Þessar yfirheyrslur eru sagðar tengjast einungis hvarfi Guðmundar Einarssonar þann 26. janúar 1974. Sigursteinn segist ekki hafa það staðfest hverjir voru handteknir en er með ákveðnar hugmyndir um það.Frá meðferð málsins árið 1980.VísirBlasti við fyrir 20 árum „Það blasti við okkur fyrir 20 árum síðan að Guðmundar-málið virtist hafa verið sett af stað vegna ábendingar sem kom frá tilteknum aðila haustið 1975 og sérkennilega í því öllu saman var að það virtist aldrei verið farið ofan í saumana á því af hverju þessi aðili benti sérstaklega á Sævar Ciesielski og Erlu Bolladóttur í þessu sambandi og Kristján Viðar Viðarsson. Þannig þessi einstaklingur sagði nokkrum sinnum við mig og fleiri að hann beri ábyrgð á hvarfi Guðmundar,“ segir Sigursteinn sem bætir við að spurningin sé hversu trúverðugur sá framburður er. „Á sínum tíma komum við á þessu framfæri til þar til bærra aðila en þetta var bara eitt af svo mörgu sem var að koma fram á þeim tíma en eftir því sem tíminn líður sér maður að það hefði verið full ástæða til að rannsaka þetta miklu betur. Þessum manni var líka sleppt úr gæsluvarðhaldi um leið og hann gaf þennan framburð á þessum tíma. Það er í sjálfu sér vitnisburður sem lögreglan hefði fyrir löngu síðan átt að kanna,“ segir Sigursteinn. „Hve vel var það rannsakað að sá einstaklingur sem taldi sig hafa vitneskju um hvarf Guðmundar væri ekki sjálfur viðriðinn það hvarf með einhverjum hætti,“ segir Sigursteinn og segir ekki hægt að útiloka að gæsluvarðhaldsfanginn hafi mögulega komið fram með þennan framburð í Guðmundarmálinu til að reyna að losna úr gæsluvarðhaldi og bæta sinn hag. Sögðust hafa ekið á mann sem svipaði til Guðmundar Sigursteinn vann að myndinni Aðför að lögum frá janúar 1996 til maí 1997 en á sínum tíma tók hann viðtöl fjölda fólks sem var með allskyns ábendingar, vísbendingar og hugmyndir um hvað hafi gerst. Meðal annars barst framburður frá tveimur mönnum sem sögðust hafa ekið á mann á Reykjavíkurvegi sömu nótt og Guðmundur hvarf og lýsingin á þeim manni svipaði mjög til Guðmundar Einarsson. Voru mennirnir tveir saman í bílnum en þeim bar ekki saman hver hefði ekið bílinn, á hvers konar bíl þeir voru og í einum framburðinum var þriðji maðurinn kominn í bílinn og svo framvegis. „Það hefði strax átt að vekja upp miklar grunsemdir. Við fórum á eftir mörgu þessu og meðal annars þessum framburði. Á þeim tíma var enginn áhugi á yfirvöldum að rannsaka yfir höfuð og hafa þann möguleika á borðinu að rangir dómar hafa verið felldir. Það var ekki fyrr en eftir að þættirnir höfðu verið sýndir vorið 1997 sem að fór að örla á slíkum áhuga og reyndar ekki fyrr en nokkrum árum síðan þegar þessi endurupptökunefnd var skipuð,“ segir Sigursteinn. „Allar tilraunir til að vekja athygli á því að það voru þarna ákveðnar vísbendingar, sumar trúverðugri en aðrar, sem bentu til þess að þetta hefði verið með allt öðrum hætti en dómarnir sögðu til um. Það var enginn áhugi fyrir því að kanna það á sínum tíma. Við ákváðum það á sínum tíma eftir að hafa farið í gegnum slíkar ábendingar að við ætluðum ekki að vera í því að reyna að upplýsa nákvæmlega hvað hefði orðið um Guðmund Einarsson eða Geirfinn Einarsson, það væri ekki okkar hlutverk heldur en hitt að sýna að dómarnir væru rangir og rangt fólk haft fyrir sök,“ segir Sigursteinn. Hafði sig sérstaklega í frammi eftir að þættirnir voru sýndir Hann segir þann sem sat í gæsluvarðhaldi haustið 1975 hafa haldið þeim framburði sínum til streitu að bera ábyrgð á hvarfi Guðmundar. „Að hann algerlega úti í bláinn komið sök á þetta fólk og hann hafi verið að beina athyglinni frá sjálfum sér. Og í betri stöðu í gæsluvarðhaldi og því máli sem hann var í þá,“ segir Sigursteinn og hafi maðurinn sérstaklega haft sig í frammi síðustu ár eftir að þættirnir voru sýndir. „Hann hefur verið illa haldinn af alkóhólisma. Það hefur verið erfitt því að á sínum tíma kom margt annað frá honum sem getur ekki staðist. Það er oft ákveðinn mælikvarði á það þú getur ekki farið lengur með ákveðna vitneskju því það er svo margt annað í kring sem gengur ekki upp. Það var okkar mat að við ætluðum ekki að fara að setja þetta í prógrammið ef um væri að ræða samviskubit einstaklings sem væri jafnvel að reyna að taka á sig eitthvað sem hann hefur ekki gert en vegna þess að hann kom sökinni á þau,“ segir Sigursteinn.Endurupptökubeiðnirnar byggja að mestu á skýrslu starfshóps Ögmundar Jónassonar sem komst að þeirri niðurstöðu að frumburðir sakborninga hafi ýmist verið falskir eða óáreiðanlegir.Vísir/GVAEndurupptökunefndin mikilvæg staðfesting Sigursteinn fór á stuttan fund með endurupptökunefndinni fyrir fjórum árum en hann hefur kynnt sér störf nefndarinnar og segir hana vera mikilvæga staðfestingu á öllu því sem fram kom í þáttunum á sínum tíma. „Enda hefur ekkert einasta atriði, hvorki stórt né smátt, verið hrakið af því sem fram kom í þáttunum fyrir 20 árum. Þá fórum við yfir hvernig framburðirnir voru fengnir með harðræði og því sem við getum kallað í dag pyndingum og margra ára einangrunarvist við alveg hörmulegar aðstæður og hvernig framburðirnir voru tvist og bast og ekki heil brú í þeim á löngum tímabilum fyrr en þeir voru allt í einu samræmdir þó fólk væri í einangrun. Þetta gat auðvitað aldrei gengið og það voru engin handbær sönnunargögn né nokkur vitni sem héldu vatni og drógu þau vitnisburði til baka. Málið var reist á sandi og hefði aldrei átt að dæmast hvorugt málið en þetta hefur endurupptökunefndin staðfest í rauninni,“ segir Sigursteinn. Aldrei spurt hvar maðurinn var þessa janúarnótt Hann segir sérstakt að vera áhorfanda að þessu máli svona mörgum árum síðar. „En ég ímynda mér að þetta sé það sem er að gerast, að menn séu að átta sig á því að upphaf málsins er Guðmundarmálið og menn hefðu átt að átta sig á því allan tímann að það skipti öllu máli að fara vel ofan í saumana á því upphafi. Og þegar menn sjá hvernig það fer af stað með þessum gæsluvarðhaldsfanga sem hefði ekki átt að teljast mjög trúverðugur um önnur sakamál á sínum tíma þá hefði alveg verið ástæða einn dag eða tvo til að virkilega rannsaka hann og spyrja hvar varst þú þess janúar nótt 1974, hvað varst þú að gera? En það virðist aldrei hafa gerst,“ segir Sigursteinn sem vill ekki gefa upp nafn þessa manns sem sat í gæsluvarðhaldinu. „Ég held að það yrði alveg rangt að gera það.“Trúir ekki öðru en Hæstiréttur samþykki endurupptöku Hann segist eiga fastlega von á því að tillaga endurupptökunefndarinnar um endurupptöku málsins verði samþykkt af Hæstarétti. „Það er ekkert annað hægt og ekkert annað í stöðunni að Hæstiréttur verður að samþykkja þetta og ég ætla ekki að hugsa þá hugsun til enda ef Hæstiréttur hafnar enn einn ganginn endurupptöku eftir allt sem er komið í ljós á þessum tuttugu árum. Þannig að ég trúi því að þetta verði endurupptekið næsta vetur. Þetta tekur allt óskaplega langan tíma. Þetta á að liggja fyrir og hefur legið fyrir tuttugu ár að það er ekki einu sinni sönnun fyrir því hvað varð um þessa menn og það er ekki sönnun fyrir því þetta fólk sem var dæmt hafi nokkuð komið nálægt þessum mannshvörfum. Það er bara í einhverjum skrýtnum einræðisríkjum að það taki allan þennan tíma að laga svona kolvitlaus mál.“
Tengdar fréttir Handtökur í Guðmundarmáli varða líkflutning: Kunningi þegar viðurkennt að hafa flutt lík Guðmundar Húsleit var framkvæmd í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálið í fyrradag. 16. júní 2016 08:41 Guðmundar- og Geirfinnsmálið: Tveir menn handteknir og yfirheyrðir Morðin voru framin árið 1974 en eru til rannsóknar nú að nýju. 15. júní 2016 07:36 Handtekinn var með háreisti í útför Sævars Maðurinn sem handtekinn var vegna nýrra vendinga í Guðmundarmálinu hefur í samtölum við fólk áður sagst hafa borið ábyrgð á hvarfi Guðmundar. 17. júní 2016 06:45 Mest lesið Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Innlent Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Innlent Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Innlent Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Innlent Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Erlent Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Erlent Ásthildur Lóa skammar þingheim Innlent Framtíð kirkjunnar enn óráðin Innlent Reyna að stilla til friðar með símtali Erlent Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Innlent Fleiri fréttir Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“ Launahækkunin mun fara í gegn en kerfið endurskoðað í haust Búa sig undir margmenni á Hengil Ultra Ásthildur Lóa skammar þingheim Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Launahækkanir ráðamanna og rifrildi Trumps og Musks í hádegisfréttum Aflýsa óvissustigi vegna norðanáhlaupsins Tveggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur konum og karli Aflamark þorsks lækkað og reiknað með að stofninn minnki áfram Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Neitaði að blása í áfengismæli Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Mörgu ábótavant við byggingu Brákarborgar Framtíð kirkjunnar enn óráðin Strandveiðisjómenn vilji aftur fá kvóta sem þeir hafi selt frá sér Nýtt slagorð Ísland Duty Free: „Ég er á leiðinni“ Börn verði að fá þau skilaboð að ofbeldi gegn þeim sé aldrei réttlætanlegt Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu Inga Sæland segist vera allt of löt að hreyfa sig Fá Barnaverndarmál leiða til ákæru og Herkastalinn í nýjar hendur Ísland, þvert á flokka boðar til annarra mótmæla Parísarhjólið rís á ný Lögregla fann bakpoka fullan af skilríkjum Sjá meira
Handtökur í Guðmundarmáli varða líkflutning: Kunningi þegar viðurkennt að hafa flutt lík Guðmundar Húsleit var framkvæmd í tengslum við Guðmundar- og Geirfinnsmálið í fyrradag. 16. júní 2016 08:41
Guðmundar- og Geirfinnsmálið: Tveir menn handteknir og yfirheyrðir Morðin voru framin árið 1974 en eru til rannsóknar nú að nýju. 15. júní 2016 07:36
Handtekinn var með háreisti í útför Sævars Maðurinn sem handtekinn var vegna nýrra vendinga í Guðmundarmálinu hefur í samtölum við fólk áður sagst hafa borið ábyrgð á hvarfi Guðmundar. 17. júní 2016 06:45