Fótbolti

Dagný loksins komin til íslensku stelpnanna í Skotlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það voru örugglega fagnaðarfundir þegar Dagný kom til Falkirk  en hér fagnar hún marki í síðasta leik íslenska liðsins í undankeppni EM sem var úti í Hvíta-Rússlandi.
Það voru örugglega fagnaðarfundir þegar Dagný kom til Falkirk en hér fagnar hún marki í síðasta leik íslenska liðsins í undankeppni EM sem var úti í Hvíta-Rússlandi. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er nú með fullskipaðan hóp í Falkirk eftir að Dagný Brynjarsdóttir kom til móts við stelpurnar í Skotlandi í gær.

Íslenska kvennalandsliðið mætir Skotlandi á föstudaginn í uppgjöri efstu liða riðilsins í undankeppni EM og liða sem hafa enn ekki tapað stigi í undankeppninni. Liðin berjast um efsta sætið sem gefur beint sæti á Evrópumótinu í Hollandi á næsta ári.

Dagný Brynjarsdóttir var upptekin með félagi sínu Portland Thorns í Bandaríkjunum á sunnudagskvöldið og ferðalagið hennar frá vesturströnd Bandaríkjanna tók sinn tíma. Knattspyrnusambandið segir frá komu hennar á heimasíðu sinni.

Tveir leikmenn úr skoska hópnum voru samferða íslensku landsliðskonunni frá Bandaríkjunum en Dagný mætti þeim einmitt á sunnudagskvöldið þegar Portland Thorns og Seattle Reign gerðu markalaust jafntefli í NWSL deildinni.

Þetta voru miðvörðurinn Rachel Corsie og miðjumaðurinn Kim Little.  Dagný átti þó nokkuð í höggi við Rachel í leiknum en sú sunnlenska lék sem framherji í þessum leik.

Dagný hefur samt sem áður enn enn náð að æfa með íslenska liðinu því hún náði þó ekki æfingu dagsins. Dagný verður þó klár í slaginn í dag þegar liðið æfir tvisvar sinnum.  

Aðstæður eru hinar ákjósanlegustu í Falkirk, veðrið leikur við heimamenn og gesti þeirra.  Sólin lætur mikið fyrir sér fara og hitinn er um 18 stig.  Allar æfingarnar fara fram á gervigrasi enda verður leikið á gervigraslögðum Falkirk velli á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×