Lífið

Daenerys hrekkir Khal Moro: Endaði allur útataður í karamellubúðingi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega spaugilegur hrekkur.
Virkilega spaugilegur hrekkur. vísir
Leikkonan Emilia Clarke, sem fer með eitt af aðalhlutverkunum í þáttunum Game Of Thrones, brá á leik á dögunum og hrekkti meðleikara sinn sem hafði sofnað í matsalnum.

Clarke fer með hlutverk Daenerys Targaryen í þáttunum og er hún ein af hetjum þáttanna. Atvikið átti sér stað þegar verið var að skjóta fjórða þáttinn í sjöttu seríunni sem er í sýningu núna.

Joseph Naufahu, sem leikur Khal Moro, sofnaði í sæti sínu og þá fékk Clarke tækifæri til að stríða honum.

„Ég hafði ekki borðað eftirréttinn minn og hann var bara á borðinu,“ segir Naufahu í samtali við Vulture.

„Hún smurði karamellubúðing yfir hendurnar á mér og útum allan búninginn minn. Þegar hún ætlaði síðan að mata mig, þá vaknaði ég með skeið í munninum.“

Hér að neðan má sjá þennan skemmtilega hrekk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×