Fótbolti

Elín Metta í byrjunarliðinu á móti Hvít-Rússum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stelpurnar eru hressar og klárar í leikinn á móti Hvít-Rússum í dag.
Stelpurnar eru hressar og klárar í leikinn á móti Hvít-Rússum í dag. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt fyrir leikinn á móti Hvít-Rússum í undankeppni EM.

Íslensku stelpurnar mæta Hvíta-Rússlandi í Minsk klukkan 15.00 að íslenskum tíma en þetta fjórði leikur íslenska liðsins í riðlinum.

Freyr er með systurnar Margréti Láru og Elísu Viðarsdætur báðar í byrjunarliði sínu en Margrét Lára ber fyrirliðabandið og Elísa er að fara að leika sinn 25. landsleik í dag.

Elín Metta Jensen er í byrjunarliðinu í dag en þær Hólmfríður Magnúsdóttir og Sandra María Jessen eru báðar á bekknum. Elín Metta kom sterk inn á kantinum á Algarve-mótinu fyrr á árinu en hún hefur hingað til spilað mest sem framherji.

Hinar öflugu Dagný Brynjarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir eru að sjálfsögðu saman á miðjunni og miðverðirnir eru sem fyrr þær Anna Björk Kristjánsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir.



Byrjunarlið Íslands á móti Hvíta-Rússlandi:

Markmaður: Guðbjörg Gunnarsdóttir

Varnarmenn: Hallbera Guðný Gísladóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Elísa Viðarsdóttir.

Miðjumenn: Fanndís Friðriksdóttir, Dagný Brynjarsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Elín Metta Jensen.

Sóknarmenn: Harpa Þorsteinsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir (Fyrirliði).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×