Wenger: Leyfum okkur ekki að dreyma um titilinn lengur Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. mars 2016 11:30 Arsene Wenger svekktur á hliðarlínunni í gær. vísir/getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var eðlilega niðurlútur eftir 2-1 tap liðsins gegn Swansea í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi, en með sigri hefðu Skytturnar getað minnkað muninn á milli sín og Leicester á toppnum í þrjú stig. Arsenal réði lögum og lofum í leiknum framan af og komst í 1-0, en Swansea jafnaði metin fyrir hálfleik og Gylfi Þór Sigurðsson lagði svo upp sigurmarkið fyrir Ashley Williams í seinni hálfleik.Sjá einnig:Gylfi lagði upp sigurmark Swansea gegn Arsenal | Sjáðu mörkin „Það lítur út fyrir það, já,“ svaraði svekktur Wenger á blaðamannafundi aðspurður hvort það væri skortur á sjálfstrausti hjá leikmönnum liðsins. „Við verðum að einbeita okkur að því sem við þurfum að gera og reyna að minna okkur á að það eru gæði í liðinu. Við þurfum að greina þessi úrslit og koma sterkir til baka því við eigum stórleik um helgina,“ sagði Wenger, en Arsenal mætir Tottenham á laugardaginn í Lundúnarslag.Sjá einnig:Gylfi fékk átta fyrir innkomuna í Lundúnum: „Svo rosalega mikilvægur þessu liði“ Arsenal hefur ekki unnið ensku úrvalsdeildina síðan 2004 en var í góðri stöðu fyrir ekki mörgum vikum síðan og gat þá leyft sér að dreyma um fyrsta titilinn í tólf ár. „Á þessari stundu hef ég meiri áhyggjur af úrslitunum heldur en titlinum. Við leyfum okkur ekki einu sinni að dreyma um titilinn þessa stundina. Við þurfum bara að vera raunhæfir og reyna að koma sterkir til baka,“ sagði Arsene Wenger.
Enski boltinn Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Reese rífur í sig metin Körfubolti Fleiri fréttir Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Sjá meira