Leiðinleg færð suðaustanlands - áfram él á suðvesturlandi Birgir Olgeirsson skrifar 11. febrúar 2016 09:41 Áfram er von á éljum á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Anton
Talsverð úrkoma er í kortunum suðaustanlands, snjókoma til fjalla en slydda á láglendi, jafnvel rigning sums staðar. Inni á vef Veðurstofu Íslands kemur fram að saman veiti þetta á fremur leiðinlega færð, krapa og hálku. Má búast við að það hvessi duglega af suðaustri á austanverðu landinu. Með suðaustlægri áttinni berst heldur mildara loft inn yfir austanvert landið en verið hefur, og dregur þá víðast hvar úr frosti. Á láglendi suðaustan- og austanlands má búast við allt að fimm stiga hita en áfram frost í fjallahæð. Austan- og norðaustanlands er snjómugga víða og einnig má búast við stöku éljum suðvestanlands, en þar er þó mun hægari vindur. Á Vestfjörðum og Norðvesturlandi er einna helst þurrt og bjart. Á morgun kólnar aftur og helgin sögð líta ljómandi vel út. Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á föstudag:Suðaustan 8-13 m/s og snjókoma eða slydda suðaustan og austanlands. Austan 5-10 m/s og lítils háttar él annars staðar en bjartviðri um landið suðvestanvert. Frost 2 til 10 stig, en um frostmark suðaustan til.Á laugardag:Austan 8-13 m/s. Skýjað austan til og él með ströndinni en bjartviðri vestan til. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum N-lands.Á sunnudag:Fremur hæg breytileg átt og víða léttskýjað, en líkur á stöku éljum við suðausturströndina. Talsvert frost um allt land.Á mánudag:Suðaustan 8-13 m/s og lítils háttar snjókoma SV-til en ört vaxandi suðaustanátt með talsverðri slyddu og síðar rigningu síðdegis. Hægari og úrkomulítið NA-til. Hlýnandi veður.Á þriðjudag:Útlit fyrir suðvestan hvassviðri með rigningu í fyrstu, en síðan slyddu og snjókomu. Áfram úrkomulítið NA-til. Kólnar í veðri.Á miðvikudag:Suðvestanátt og él en bjartviðri N- og A-lands. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Innlent „Svaraðu spurningunni“ Innlent Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Innlent Enn í lífshættulegu ástandi Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Innlent Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Innlent Fleiri fréttir Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Sjá meira