Íslenskur læknir dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi í Ungverjalandi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. janúar 2016 22:19 Háskólinn í Debrecen. Emma Caroline stundaði nám við skólann er árásin átti að hafa verið framin. Vísir/Getty
Emma Caroline Fernandez, íslenski læknirinn sem ákærð var tilraun til manndráps sumarið 2012 er hún stundaði læknanám í Debrecen, var í gær dæmd í fimm ára skilorðsbundið fangelsi þar í landi fyrir alvarlega líkamsárás. Þetta kemur fram í frétt Debrecen Sun um málið.Emma, sem starfaði sem læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands þangað til henni var veitt leyfi frá störfum vegna málsins hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu í málinu og segir lögfræðingur hennar að verulegir annmarkar hafi verið á rannsókn málsins í Ungverjalandi.Sjá einnig: Íslensk kona ákærð í Ungverjalandi: Segir fórnarlambið ekki hafa mætt fyrir dómstólaHún var sökuð um að hafa byrlað vinkonu sinni, nígerískri skólaystur sinni, svefnlyf og barið hana tvívegis í höfuðið með hamri en Emma Caroline segir að meint fórnarlamb hennar hafi sviðsett atvikið. Ekki náðist í Ingibjörgu Ólöfu Vilhjálmsdóttur, lögmann Emmu, við vinnslu fréttarinnar en í samtali við fréttastofu í október á síðasta ári sagði hún að verulegur vafi væri í málinu, sönnunargögn sem hún hafi reynt að koma á framfæri hafi ekki verið gefinn gaumur og sýni sem hefðu verið tekin í sambærilegu máli hér á landi ekki verið tekin.Sjá einnig: Ákærð fyrir manndrápstilraun í Ungverjalandi: Veit ekki hvort hún hafi verið rekin eða ekki„Hún í rauninni telur að þarna hafi verið sviðsettur glæpur. Það er ekki um að ræða höfuðkúpubrot í þessu máli. Þarna er um að ræða, að mér skilst, nokkur spor í höfuðið og það eru áverkar sem umbjóðandi minn telur að fórnarlambið svokallaða hafi valdið sér sjálf,“ sagði Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, verjandi Emmu Caroline. Ingibjörg segir að dæma hafi átt í málinu í september á síðasta ári en eftir að ungversk yfirvöld komust á snoðir um það að íslensk yfirvöld vissu af málinu hafi því verið frestað.Sjá einnig: Læknir ekki framseldur þótt hún yrði dæmd sekÍ frétt Debrecen Sun um dóminn segir að nígeríska konan hafi ekki verið viðstödd réttarhöldin en að þrjár fyrri yfirlýsingar hennar og átta vitni hefðu þótt nógu sannfærandi til þess að dæma Emmu Caroline í fimm ára skilorðsbundið fangelsi. Samkvæmt frétt Debrecen Sun hefur Emma Caroline átta daga eftir að hún fær dóminn í hendurnar til þess að áfrýja en samkvæmt 2. gr laga um framsal sakamanna má ekki undir neinum kringumstæðum framselja íslenska ríkisborgara.
Tengdar fréttir Ákærð fyrir manndrápstilraun í Ungverjalandi: Veit ekki hvort hún hafi verið rekin eða ekki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands tilkynnti í gær að konan, sem heitir Emma Caroline Fernandez, hefði verið sett í leyfi. 6. október 2015 12:00 Íslensk kona ákærð fyrir tilraun til manndráps í Ungverjalandi Atvikið átti sér stað árið 2012 er konan stundaði læknanám í Debrecen. 4. október 2015 20:16 Læknir ekki framseldur þótt hún yrði dæmd sek Íslenskur læknir, sem grunaður er um mortilraun í Ungverjalandi, segir að um sviðsettan glæp sé að ræða. Konan starfar hér á landi. Verjandi segir rannsókninni vera ábótavant. Íslenskir ríkisborgarar eru ekki framseldir til annarra landa. 6. október 2015 07:00 Íslensk kona ákærð í Ungverjalandi: Segir fórnarlambið ekki hafa mætt fyrir dómstóla Íslensk kona, sem bíður dóms í Ungverjalandi fyrir tilraun til manndráps sumarið 2012, segist vera saklaus í málinu og að meint fórnarlamb hennar hafi sviðsett það, en hún er sökuð um að hafa byrlað vinkonu sinni svefnlyf og barið hana tvívegis í höfuðið með hamri. Konan starfar sem læknir á Íslandi. 5. október 2015 19:15 Veitt leyfi frá störfum vegna ákæru fyrir manndrápstilraun Íslenska konan sem ákærð er í Ungverjalandi er starfsmaður Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. 5. október 2015 19:14 Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Fleiri fréttir Sú gula spókar sig á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Sjá meira
Ákærð fyrir manndrápstilraun í Ungverjalandi: Veit ekki hvort hún hafi verið rekin eða ekki Heilbrigðisstofnunar Suðurlands tilkynnti í gær að konan, sem heitir Emma Caroline Fernandez, hefði verið sett í leyfi. 6. október 2015 12:00
Íslensk kona ákærð fyrir tilraun til manndráps í Ungverjalandi Atvikið átti sér stað árið 2012 er konan stundaði læknanám í Debrecen. 4. október 2015 20:16
Læknir ekki framseldur þótt hún yrði dæmd sek Íslenskur læknir, sem grunaður er um mortilraun í Ungverjalandi, segir að um sviðsettan glæp sé að ræða. Konan starfar hér á landi. Verjandi segir rannsókninni vera ábótavant. Íslenskir ríkisborgarar eru ekki framseldir til annarra landa. 6. október 2015 07:00
Íslensk kona ákærð í Ungverjalandi: Segir fórnarlambið ekki hafa mætt fyrir dómstóla Íslensk kona, sem bíður dóms í Ungverjalandi fyrir tilraun til manndráps sumarið 2012, segist vera saklaus í málinu og að meint fórnarlamb hennar hafi sviðsett það, en hún er sökuð um að hafa byrlað vinkonu sinni svefnlyf og barið hana tvívegis í höfuðið með hamri. Konan starfar sem læknir á Íslandi. 5. október 2015 19:15
Veitt leyfi frá störfum vegna ákæru fyrir manndrápstilraun Íslenska konan sem ákærð er í Ungverjalandi er starfsmaður Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. 5. október 2015 19:14