Shhaideh verður ekki nýr forsætisráðherra Rúmeníu Atli Ísleifsson skrifar 27. desember 2016 15:02 Sevil Shhaideh er sögð náinn bandamaður leiðtoga rúmenskra Jafnaðarmanna, Liviu Dragnea. Vísir/EPA
Klaus Iohannis, forseti Rúmeníu, lýsti því yfir í dag að hann muni ekki skipa hina 52 ára Sevil Shhaideh sem nýjan forsætisráðherra landsins. Shhaideh hefði orðið fyrsta konan og fyrsti músliminn til að að gegna embættinu í landinu. „Ég hef metið rökin með og gegn tillögunni og hef ákveðið að samþykkja hana ekki,“ sagði Iohannis í sjónvarpsávarpi fyrr í dag. Jafnaðarmannaflokkurinn (PSD) vann sigur í nýafstöðnum þingkosningum í Rúmeníu og hlaut 45,1 prósent atkvæða. Þar sem leiðtogi flokksins, Liviu Dragnea, hafði áður hlotið dóm fyrir tilraun til kosningasvindls kaus flokkurinn að tilnefna Shhaideh sem forsætisráðherraefni sitt. Shhaideh er hluti tyrknesks minnihlutahóps í landinu. Forsetinn greindi ekki nákvæmlega frá ástæðum ákvörðunar sinnar. Shhaideh er ekki með mikla stjórnmálareynslu, en hún var ráðherra þróunarmála um hálfs árs skeið í fyrrverandi ríkisstjórn Jafnaðarmanna sem fór frá árið 2015. Shhaideh er sögð náinn bandamaður Dragnea og hafa andstæðingar Jafnaðarmanna sagt hana einungis vera strengjabrúðu hans.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri alvarlegri samtöl og oftar haft samband við Neyðarlínuna Innlent Nakinn á rölti og hrækt í hár ökumanns Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Erlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Fleiri fréttir Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Sjá meira