Skotárásin í Breiðholti: Búið að handtaka hinn manninn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. ágúst 2016 11:04 Frá vettvangi árásarinnar á föstudagskvöld. vísir/jkj
Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur leitað að í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í Breiðholti á föstudagskvöld var handtekinn í morgun. Er hann annar tveggja manna sem grunaðir eru um aðild að skotárásinni en hinn var handtekinn aðfaranótt laugardags. Var sá maður í framhaldinu úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Maðurinn sem var handtekinn í dag hefur verið færður til yfirheyrslu en ákvörðun um gæsluvarðhaldskröfu yfir honum hefur ekki verið tekin, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Verður hún tekin síðar í dag þegar búið er að yfirheyra manninn. Í samtali við fréttastofu fyrr í morgun sagði Friðrik Smári Björgvinsson yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar að rannsókn málsins væri í fullum gangi. Skotárásin átti sér stað seint á föstudagskvöldið við Iðufell í Breiðholti. Mikil slagsmál höfðu brotist út og í kjölfarið var skotið úr haglabyssu í átt að rauðum Yaris. Sérsveit ríkislögreglustjóra var send á staðinn og lokaði svæðinu af. Voru maður og kona handtekin í tengslum við málið en konunni var sleppt en maðurinn úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald eins og áður segir.
Tengdar fréttir Lögregla leitar manna og bifreiðar í kjölfar skotárásar í Fellahverfi Lögreglan telur að atvikið hafi tengst deilum þröngs hóps og að það hafi ekki beinst að almenningi. 6. ágúst 2016 01:32 Lögregluaðgerð í Fellahverfi eftir að skotið var tvisvar úr haglabyssu Hópslagsmál við söluturninn í Iðufelli enduðu með því að hleypt var tveimur skotum úr haglabyssu. Lögregla leitaði mannana fram eftir kvöldi. 5. ágúst 2016 21:58 Skotárás í Breiðholti: Maðurinn í vikulangt gæsluvarðhald en konan látin laus Lögregla leitar enn annars manns sem talinn er tengjast málinu. 6. ágúst 2016 17:35 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira
Lögregla leitar manna og bifreiðar í kjölfar skotárásar í Fellahverfi Lögreglan telur að atvikið hafi tengst deilum þröngs hóps og að það hafi ekki beinst að almenningi. 6. ágúst 2016 01:32
Lögregluaðgerð í Fellahverfi eftir að skotið var tvisvar úr haglabyssu Hópslagsmál við söluturninn í Iðufelli enduðu með því að hleypt var tveimur skotum úr haglabyssu. Lögregla leitaði mannana fram eftir kvöldi. 5. ágúst 2016 21:58
Skotárás í Breiðholti: Maðurinn í vikulangt gæsluvarðhald en konan látin laus Lögregla leitar enn annars manns sem talinn er tengjast málinu. 6. ágúst 2016 17:35