Þingkona Framsóknar segir frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar vera vonbrigði Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 8. ágúst 2016 21:00
Þingmaður Framsóknarflokksins segir boðað frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra sem mun draga úr vægi verðtryggingar valda vonbrigðum. Það sé ábyrgðarlaust gagnvart kjósendum flokksins að reyna ekki að ganga lengra og afnema verðtrygginguna fyrir kosningar. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, mun á næstu dögum leggja fyrir ríkisstjórn frumvarp sem miðar að því að draga úr vægi verðtryggingar. Greint var frá málinu í fréttum Stöðvar 2 fyrir helgi en Bjarni sagði samstöðu um málið í ríkisstjórn. Elsa Lára Arnardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir drög að frumvarpinu hafa verið kynnt fyrir þingflokki flokksins í vor. „Það sem ég sá þar fannst mér góðar tillögur fyrir þann hóp sem aðgerðin náði til, en mér finnst við miða við of þröngan hóp fólks og hefði viljað sjá dýpri útfærslur til breiðari hóps varðandi þetta mál. Umræður hefðu átt sér stað innan þingflokksins um hvernig hægt verður að breyta frumvarpinu þannig að það nái til stærri hóps.“Áttu von á að leggja fram breytingar á frumvarpinu til að ganga lengra en að aðeins draga úr vægi verðtryggingar? „Mér þætti það ábyrgðarlaust gagnvart okkar kjósendum sem kusu okkur í síðustu kosningum ef við myndum ekki reyna hafa áhrif á málið í þá veru.“ Þeir þingmenn Framsóknarflokksins sem fréttastofa ræddi við í dag tóku undir með Elsu Láru um að ekki væri nóg að draga úr vægi verðtryggingar. Afnema þyrfti hana að fullu. „Við höfum verið að bíða eftir útfærslum og þá sjáum við þessa sem er núna að fara að koma, sem sagt drög að henni í vor, um að draga úr vægi verðtryggingar. Ég verð að segja að þrátt fyrir mikla og góða vinnu sem hefur átt sér stað hjá fjölda fólks þá hef ég orðið fyrir vonbrigðum til hversu afmarkaðs hóps þessi aðgerð nær til,“ segir Elsa Lára.
Tengdar fréttir Draga úr vægi verðtryggingar Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, segir að lögð verði fram frumvörp um verðtrygginguna og séreignasparnað á fyrstu dögum þingsins. Þetta segir hann í samtali við RÚV. 8. ágúst 2016 07:00 Aðgerðir til að draga úr vægi verðtryggingar kynntar í næstu viku Bjarni Ben segist aldrei hafa talað fyrir því að afnema verðtrygginguna með einu pennastriki. 5. ágúst 2016 19:51 Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Sjá meira
Draga úr vægi verðtryggingar Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, segir að lögð verði fram frumvörp um verðtrygginguna og séreignasparnað á fyrstu dögum þingsins. Þetta segir hann í samtali við RÚV. 8. ágúst 2016 07:00
Aðgerðir til að draga úr vægi verðtryggingar kynntar í næstu viku Bjarni Ben segist aldrei hafa talað fyrir því að afnema verðtrygginguna með einu pennastriki. 5. ágúst 2016 19:51