Með sérsmíðaðan sjússamæli á fingrunum Stefán Þór Hjartarson skrifar 23. september 2016 10:00 Andri Davíð leggur allt í sölurnar til að vinna þessa keppni og er ekkert til sparað. Vísir/Eyþór „
Ég lét útbúa sjússamæli og hrististand til að hrista fjóra kokteila í einu. Sjússamælirinn er hringur sem snýst – ég er í raun með hann á baugfingri og löngutöng og í honum eru átta mælieiningar í einu. Hringurinn snýst aðallega upp á „showið“, fólk hefur ekki séð þetta áður en það skiptir miklu máli að vera með gott „show“. Þessi hringur og hrististandur er alfarið mín hugmynd en ég útfærði þetta með Sigurði Inga frænda mínum og afa mínum og þeir smíðuðu þetta inni í bílskúr,“ segir Andri Davíð Pétursson en hann heldur út til Miami á laugardaginn til að keppa í World Class-keppninni í barþjónustu en þar er keppt um það hver sé besti barþjónn í heiminum. En hvað ætli þurfi til að komast í svona keppni? „Maður þarf að eyða ógeðslega miklum tíma í að sinna því sem maður hefur ógeðslega mikinn áhuga á – í mínu tilfelli er það barþjónusta og það sem henni tengist eins og samsetning á bragði og þess háttar. Í raun og veru sigraði ég í forkeppni sem var hérna á Íslandi og það var fyrsta Master Class-keppnin sem hefur verið haldin hér á landi – hún byrjaði í fyrra og var níu mánaða prógramm þar sem ég stóð uppi sem sigurvegari.“ Fyrir utan að hafa látið sérsmíða tól handa sér til að hafa með út hefur Andri í samstarfi við Omnom látið sérútbúa indverskt súkkulaði, en einn dómarinn í keppninni er Indverji. Hann hefur líka tínt íslenskar jurtir sem hann ætlar að nota í kokteilana. „Ég er búinn að vera að undirbúa mig frá því í sumar, alveg frá því að við vissum hvað við ættum að gera úti – þá fór bara undirbúningur strax í gang. Ég þurfti að nota jurtatímabilið, en jurtirnar eru mitt einkennismerki – ég tíni jurtir sem eru í blóma á mismunandi árstímum. Ég er að taka jurtir eins og blóðberg, vallhumal, hlaðkollu og fleiri sem ég hef verið að stúdera undanfarin ár. Ég bý svo til líkjöra úr jurtunum og nota þá til að blanda kokteila.“ Andri ætlaði að fara út með íslenskan jökulís til að nota í drykkina sína en því miður klikkaði það hjá honum – hann biðlar því til fólks sem getur reddað honum jökulís að hafa samband við sig. Það er best að ná Andra á like-síðu hans á Facebook. Keppninni verður streymt í beinni hér og það verður ekki amalegt að fylgjast með því þegar við Íslendingar eignumst heimsmeistara í barþjónustu.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira