Tréskúlptúrarnir hans Boga birta hinar litskrúðugustu myndir sem hann marglakkar yfir með glæru lakki svo þeir líta út eins og glerlistaverk. Fyrst kveðst hann móta mynstrin í viðarplankana, bæði með sporjárni og slípirokki, og nota margs konar liti en þó einkum tréliti af bestu gerð.
„Þannig næ ég fram smáatriðunum,“ segir hann og bætir við: „Það er erfitt að búa til eitthvað nýtt, bæði í myndlist og tónlist, en ég veit ekki um neinn sem hefur notað þessa aðferð. Það er gaman að fylgjast með gestum sem koma á sýninguna því hinir sterku litir fanga strax augu þeirra.“

Hann kveðst hafa byrjað í Myndlista-og handíðaskólanum í kringum 1970 eins og margir aðrir en lífsbaráttan hafi tekið völdin, líka tónlist og spilerí með ballhljómsveitum á borð við Ópus. En hann lítur björtum augum til eftirlaunaáranna þegar hann getur helgað sig listinni meira.