Ég er ekkert hissa á þessari byrjun okkar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 9. maí 2015 10:00 Hilmar Árni Halldórsson spilaði vel í sínum fyrsta leik í Pepsi-deild karla. Vísir/Valli „
Það er ekkert annað. Ég þakka kærlega fyrir það,“ sagði hinn kurteisi Leiknismaður Hilmar Árni Halldórsson er honum var tjáð að hann hefði verið valinn besti leikmaður 1. umferðar í Pepsi-deild karla. Hilmar Árni var frábær á miðjunni hjá Leikni sem vann magnaðan 3-0 sigur á Val í fyrsta leik félagsins í efstu deild. Hilmar Árni skoraði þriðja mark leiksins. „Ég er ekkert hissa á þessari byrjun okkar. Við mættum vel undirbúnir og höfum fulla trú á okkur. Þess vegna gekk vel þennan dag,“ segir Hilmar Árni en hann var valinn besti leikmaður 1. deildar á síðustu leiktíð. Hann sýndi í þessum leik að hann á fullt erindi í deild þeirra bestu. „Ég reyni að einbeita mér að því sem við erum að gera á vellinum. Ekki að neinu öðru. Ég hef trú á liðsfélögum mínum og þeir hafa trú á mér. Við reynum að vinna þetta saman sem ein heild.“ Miðjumaðurinn hefur engar áhyggjur af því að þessi fína byrjun og öll fjölmiðlaathyglin sem hefur fylgt henni muni stíga liðinu til höfuðs. „Við erum búnir að ganga í gegnum ýmsa hluti þó svo við höfum ekki gert það í efstu deild. Þjálfararnir hafa stillt okkur vel af og fengið okkur til að einblína á næsta verkefni. Það hefur gengið vel og menn eru bara að hugsa um næsta leik,“ segir Hilmar Árni og segir liðið vel vita hvað þurfi að gera svo fleiri stig komi í hús. „Við verðum að halda áfram að leggja fram mikla vinnu. Við erum á fínni leið en þetta er auðvitað bara rétt að byrja. Ég hef engar áhyggjur af því að við munum ekki halda áfram að leggja hart að okkur og reyna að bæta okkur sem lið. Það var mjög gaman í fyrsta leik og mikil stemning. Ég vona að það verði margir á fyrsta heimaleiknum okkar á mánudaginn. Það er flott stemning í kringum starfið og vonandi verður framhald á því.“ Leiknir tekur á móti ÍA í nýliðaslag á mánudag og leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Glímdi við augnsjúkdóm Sport Fleiri fréttir Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Sjá meira