Bara einn eftir í GCD Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 8. júní 2015 08:00 Hér má sjá þá Berþór Morthens, Bubba Morthens, Rúnar Júlíusson og Gunnlaug Briem árið 1993. Fréttablaðið/stefán Pálsson Vísir/Stefán
Athygli hefur vakið að á væntanlegum tónleikum hinnar goðsagnakenndu rokksveitar GCD sem haldnir eru til að heiðra minningu Rúnars Júlíussonar er það aðeins Bubbi Morthens sem koma mun fram af upprunalegum meðlimum sveitarinnar. Sveitin var stofnuð vorið 1991 af þeim Bubba og Rúnari en aðrir meðlimir voru þeir Gunnlaugur Briem og Bergþór Morthens. „Þessir tónleikar eru bara eitthvað annað. Bubbi ásamt góðum hljóðfæraleikurum að leika lög GCD en þetta er ekki GCD frekar en Rolling Stones án Keith og Charlie,“ segir Gulli sem lék á trommur með GCD. „Við erum starfandi tónlistarmenn og þurfum eins og aðrir að lifa og afla tekna. Tónleikar og sýningar í Hörpu eða annars staðar eru ekki bara til að hafa gaman og horfa yfir farinn veg heldur til að setja mat á borðið og bensín á bílinn. Launamálin gengu bara ekki upp, þó svo menn hafi verið allir af vilja gerðir til að semja. Þetta sigldi bara í strand,“ segir hann um ástæður þess að hann og Bergþór leiki ekki með sveitinni á tónleikunum sem haldnir verða þann 11. september í Elborgarsal Hörpu. Pálmi Gunnarsson leikur á bassa á tónleikunum auk fleira tónlistarfólks. GCD starfaði í þrjú sumur á árunum 1991, 1994 og 1995 og sendi frá sér þrjár plötur. „Þessi hljómsveit gerði saman fullt af flottum lögum og það er það sem skiptir máli, að fólk njóti þessara laga, þó ekki verði þetta týpískur GCD hljómur eða taktur,“ segir Gulli og heldur áfram: „Trommuleikur minn hefur ákveðið sánd og stemmingu sem og snilldargítarleikur Begga Morthens svo ég tali ekki um rödd og nærveru eðaldrengsins Rúnars heitins. Það verður ekki á þessum tónleikum en bara eitthvað öðruvísi og eflaust flott. Á endanum snýst þetta um tónlistina mest. Ég óska gömlu vinum mínum alls hins besta og góðs gengis.“ „Ég vil ekki fara í eitthvert stríð út af þessu en finnst eðlilegt að fólk viti hver mergur málsins er, hvers vegna gamla GCD verður ekki á þessum tónleikum,“ segir Gulli að lokum. Ekki náðist í Bubba Morthens við vinnslu fréttarinnar í gærkvöldi.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Sjá meira