Innlent

Skoðun breytir útbreiðslu og hegðun

Svavar Hávarðsson skrifar
Mikil fækkun hefur orðið í stofnum sela við Ísland á síðustu áratugum.
Mikil fækkun hefur orðið í stofnum sela við Ísland á síðustu áratugum. fréttablaðið/vilhelm
Viðvera ferðamanna í selaskoðun hefur greinilega truflandi áhrif á dýrin. Bæði leiðir hún af sér aukna árvekni sela og hefur áhrif á útbreiðslu þeirra. Niðurstöður rannsókna sýna jafnframt að hegðun ferðamanna skiptir máli og hægt er að draga úr truflun sem selurinn verður fyrir ef ferðamenn taka það rólega á selskoðunarstaðnum.

Selaskoðun er ein þeirra greina sem notið hafa vaxandi vinsælda meðal ferðamanna. Nýlega birtust tvær vísindagreinar í alþjóðlegum ritrýndum vísindatímaritum um niðurstöður slíkra rannsókna. Fyrsti höfundur beggja greinanna er Sandra M. Granquist, starfsmaður Veiðimálastofnunar.

Þá er Hrefna Sigurjónsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, einnig annar höfunda eins og segir í frétt á heimasíðu Veiðimálastofnunar.

Í rannsóknarniðurstöðum er greint frá því að hægt sé að lágmarka áhrif ferðamennsku með notkun hegðunarreglna, þar sem æskileg hegðun í návist villtra dýra sé útskýrð.

Þá er bent á að erfiðleikar við yfirfærslu kunnáttu frá akademíu til ferðamannaiðnaðar, ásamt skorti á þverfaglegu samstarfi þegar kemur að því að stjórna náttúrutengdri ferðaþjónustu, gæti haft óbein truflandi áhrif á villt dýr.

Þá er fjallað um samstarf á milli líffræðinga og ferðamálafræðinga, ávinninginn af þverfaglegum rannsóknum og mikilvægi þess að taka tillit til rannsóknarniðurstaðna beggja greinanna þegar kemur að stjórn á ferðamennsku sem tengist villtum dýrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×