Kristinn bætti meira en 53 ára gamalt met bróðurs Bjarna Fel Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2015 07:30 Sex mínútur. Kristinn Steindórsson byrjaði vel. Mynd/KSÍ
Kristinn Steindórsson skoraði ekki bara í sínum fyrsta landsleik á móti Kanada heldur tókst honum, með því að skora strax á sjöttu mínútu leiksins, að verða fljótastur til að skora fyrir íslenska landsliðið í tæplega sjötíu ára sögu þess. Gunnar Felixson, bróðir Bjarna Fel, hafði átt metið í meira en 53 ár eða síðan Gunnar skoraði tvö mörk á móti áhugamannslandsliði Hollands á Laugardalsvellinum 19. júní 1961. Gunnar skoraði mörkin sín á 10. og 40. mínútu en þau komu bæði eftir sendingar frá Þórólfi Beck sem spilaði líka með honum hjá KR. Það var hins vegar Kópavogssamvinna í marki Kristins, en hann sem gamall Bliki skoraði þá með skalla eftir frábæran undirbúning Rúriks Gíslasonar, sem var uppalinn hjá HK. Einum leikmanni hafði tekist að jafna met Gunnars á þessum rúmu 53 árum. Ólafur Danivalsson skoraði sitt fyrsta landsliðsmark tíu mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður á móti Færeyjum á malarvelli í Þórshöfn 16. júní 1976. 29 aðrir landsliðsmenn hafa náð því að skora í sínum fyrsta landsleik en aðeins fjórir þeirra hafa náð því að skora líka í sínum öðrum landsleik. Kristinn fær tækifæri til að bætast í þann hóp í kvöld þegar Ísland og Kanada mætast öðru sinni á Flórída.Fljótastur til að skora í sínum fyrsta landsleik:6 mínútur Kristinn Steindórsson á móti Kanada 16. janúar 201510 mínútur Gunnar Felixson á móti Hollandi 19. júní 196110 mínútur Ólafur Danivalsson á móti Færeyjum 16. júní 197616 mínútur Sveinn Teitsson á móti Austurríki 29. júní 195316 mínútur Jón R.Jóhannsson á móti Wales 15. ágúst 196616 mínútur Guðmundur Benediktsson á móti Sam. arabísku furstad. 30. ágúst 199418 mínútur Grétar Rafn Steinsson á móti Brasilíu 8. mars 200220 mínútur Tómas Pálsson á móti Englandi 4. ágúst 1971
Fótbolti Mest lesið Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Enski boltinn Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Enski boltinn Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Fótbolti Blikar áfram með fullt hús stiga Körfubolti Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Körfubolti „Bara feginn að við fundum þó leið“ Körfubolti ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum Körfubolti Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Enski boltinn Sandra hélt áfram að fagna eftir landsleikina Fótbolti Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ Handbolti Fleiri fréttir Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Sandra hélt áfram að fagna eftir landsleikina Ísland fær eitt lakara lið í sinn riðil Sjáðu besta liðið í föstum leikatriðum leika listir sínar Barcelona skuldar mest en Tottenham er númer tvö Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Mikilvægt fyrir United að hamra járnið meðan það er heitt Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Nýr þjálfari Juventus er með Napoli-húðflúr „Nú er nóg komið“ Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Hetja Englands á EM sleit krossband Lofar frekari fjárfestingum Juventus ræður Spalletti út tímabilið Meistaradeildin skiptir um bjór og Heineken snýr sér að padel Aron Einar kominn á toppinn Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi Fantasýn: „Þessi vörn er eitthvað skrímsli“ Scholes hættir og setur einhverfan son sinn í fyrsta sætið Rúmar tvær milljónir í boði ef þú finnur hundinn hans Aarons Ramsey Carrick í einkaviðtali: Sigurinn á Anfield stór stund fyrir Man. Utd Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Sjá meira