Þjálfari Celtic: Við eigum að vinna Stjörnuna Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. júní 2015 20:15 John Kennedy yst á myndinni að fagna Skotlandsmeistaratitlinum með Ronny Deila og þjálfaraliði Celtic. vísir/getty
Eins og kom fram fyrr í dag mæta Skotlandsmeistarar Celtic aftur til Íslands í sumar, en þeir drógust gegn Íslandsmeisturum Stjörnunnar í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Stjarnan vakti mikla athygli í fyrra þegar liðið komst alla leið í umspil um sæti í Evrópudeildinni, en á leiðinni þangað vann það Motherwell frá Skotlandi í tveimur leikjum. „Stjarnan er ekki á sama stað og hún var í fyrra sé litið á töfluna. Þetta er samt leikur sem við þurfum að passa okkur á og við verðum að vinna heimavinnuna okkar,“ segir John Kennedy, einn af þjálfurum liðsins, í viðtali við BBC. „Við vitum meira um liðið því það spilaði við Motherwell, en það er langt síðan og hlutirnir hafa breyst.“ „Stjarnan er búin að tapa nokkrum leikjum og virðist ekki vera í sama formi og á síðustu leiktíð.“ Fyrri leikurinn fer fram í Glasgow 14. eða 15. júlí og seinni leikurinn viku síðar í Garðabæ. „Við erum með mikil gæði í okkar liði og miðað við stærð félagsins eigum við að vinna Stjörnuna. Pressan er á okkur og kannski hentar það þeim vel að koma hingað sem litla liðið og gefa allt í þetta,“ segir John Kennedy.
Íslenski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira