Stoðsendingakóngurinn til Sarpsborg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. nóvember 2015 13:35 Kristinn Jónsson. Vísir/Stefán
Kristinn Jónsson, besti leikmaður Pepsi-deildar karla 2015 að mati Fréttablaðsins, hefur yfirgefið Breiðblik og samið við norska úrvalsdeildarliðið Sarpsborg 08. Þetta kemur fram á Blikar.is og á heimasíðu norska liðsins. Kristinn sem er 25 ára gamall vinstri bakvörður hefur spilað 140 leiki með Blikum í úrvalsdeild karla og skorað í þeim 9 mörk. Kristinn gaf flestar stoðsendingar af öllum leikmönnum Pepsi-deildarinnar á síðasta tímabili eða alls níu í þessum 22 leikjum. Hann varð þá fyrsti bakvörðurinn sem nær því. Þetta verður í annað skiptið sem Kristinn yfirgefur Blika og fer út í atvinnumennsku en hann var lánaður til sænska liðsins Brommapojkarna tímablið 2014. Nú mun Kristinn hinsvegar reyna fyrir sér hjá norska úrvalsdeildarliðinu Sarpsborg 08 sem hefur verið í efstu deild síðan árið 2012 og lenti í 11. sæti á síðasta tímabili. Sarpsborg 08 vann tvo af þremur síðustu leikjum sínum og var þremur stigum á undan Haugesund. Kristinn Jónsson var í landsliðshópnum hjá Lars Lagerbäck og Heimi Hallgrímssyni í ár og ætti með þessum félagsskiptum að auka líkurnar á því að hann verði með á EM næsta sumar. Blikar tala á heimasíðu sinni um að það sé mikil blóðtaka fyrir Blikaliðið að missa Kristinn og það eru orð að sönnu. Kristinn átti frábært tímabil og var lykilmaður í vörn sem sókn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Körfubolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu Fótbolti Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Fótbolti Dagskráin: Körfuboltakvöld, Man. United í beinni og úrslitaleikur um sæti í Bónus Sport Fleiri fréttir 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Sjá meira