Menning

Fallegustu og ljótustu bókakápur 2015

Það ætti auðvitað ekki að dæma bókina eftir kápunni en engu að síður skiptir bókarkápa miklu máli, getur vakið áhuga og skapað réttu stemninguna.

Hér hefur sveit álitsgjafa tekið að sér að skoða úrvalið og skutla í álit á þeim fallegustu og bestu árið 2015. Allt er þetta til gamans gert og segir auðvitað ekkert um gæði viðkomandi bóka.

FALLEGASTA BÓKAKÁPAN 2015

1. sæti


Dimma, spennusaga eftir Ragnar Jónasson sem er rísandi stjarna í glæpasagnaheiminum.

Kápan er eftir Ragnar Helga Ólafsson sem hefur hannað fjöldan allan af frábærum bókarkápum í gegnum tíðina.

„Mjög vel heppnuð og töff. Það er einhver mystík í letrinu sem lýsir titlinum svo vel.“

„Þessi finnst mér best og rétt á undan Leiðin útí heim. Flott týpografía en útgefandi hefði alveg getað sleppt því að troða þessum texta inná sem er gjörsamlega ofaukið.“

„Hrein og afdráttarlaus og hæfir efninu fullkomlega. Kemur ekki á óvart að þessi er eftir besta kápuhönnuð landsins.“

2. sæti

Eitthvað á stærð við alheiminn, seinni hluti ættarsögunnar eftir Jón Kalman Stefánsson.

Ragnar Helgi Ólafsson hönnuður tekur tvö efstu sætin.

„Dulúðug og seiðandi mynd sem gerir mig forvitna. Leturval og framsetning vel samsett og falleg heild.“



Fallegt, ljóðrænt í stíll við það sem hann hefur verið að gera.“









3. sæti

Týnd í paradís eftir Mikael Torfason.

Kápa eftir myndlistarmanninn Jón Óskar.

Eina kápan sem flaug inn á lista yfir bestu og verstu kápurnar.

„Verk eftir Jón Óskar! Svalasta myndlistarmanninn í bransanum. Þetta er engin samkeppni. Verkið er retró og hæfir efninu vel.







LJÓTASTA BÓKAKÁPAN 2015

1. sæti

Inn í myrkrið eftir Ágúst Borgþór Sverrisson.

Kápuhönnun eftir Pétur R. Pétursson.

„Hún stendur ekki út úr. Þreytt og umbrotið er einhvern veginn þannig að „Inn í“ sést ekki, heldur bara „myrkrið“ og þá verður þetta eins og bók eftir Stefán Mána; Myrkrið, Húsið, Nautið, Slátrið, Skipið...“

„Sumar eru ekkert endilega ljótar, smekkur manna er misjafn. Nokkrar bókakápur eru leystar með svo einföldum hætti að þær gefa of lítið uppi. Sem dæmi má nefna, Myrkur Ágústs Borgþórssonar.“

„Æ, hef ég ekki séð þetta 1.000 sinnum áður?“

2. sæti

Stóri skjálfi eftir Auði Jónsdóttur.

Kápuhönnun Lubbi slf.

„Alveg ótrúlega tilþrifalítil kápa, þurr og leiðinleg. Eins og hönnuðurinn hafi ekki nennt þessu. Og ef hönnuðurinn nennir ekki að hanna kápuna af hverju ætti maður að nenna að lesa? Auður ætti að hundskamma útgáfuna fyrir hörmuleg vinnubrögð.“

„Það eru svo mikilir vannýttir möguleikar í þessari kápu. Þarna gæti verið stórskemmtilegur leikur við titilinn en er aftur á móti mjög óspennandi og pínu eins og þetta sé uppkast sem eigi eftir að klára.“

„Þessi hefði getað orðið frábær! En einhverjum tókst að eyðileggja hana með ljótu fyrirsjáanlegu letri … Joy Division gerði þetta betur.“



3. sæti

Týnd í Paradís eftir Mikael Torfason.

Kápa eftir myndlistarmanninn Jón Óskar

Þessi fellur algjörlega á leturmeðferðinni. Eins og myndskreytingin er skemmtileg og örugglega lýsandi fyrir innihaldið þá er þessi leturgerð eins og fyrir gamla kúrekamynd og er bara ekki að virka.“

Þó að ég elski Jón Óskar og flest hans verk,  þá er þetta letur það ljótasta sem ég hef séð.“







Komu talsvert til umræðu í báðum flokkum:

Blýengill

„Fallegust er Blýengillinn, þó ég viti ekki einu sinni um hvað sú bók fjallar.“

„Fislétt og falleg.“

Egilssögur

„Egill Ólafs í myndum sem Jón forseti, prestur, spilverkari, flagari og þurs, alvöru ljósmyndir en ekki eitthvert leiðinda grafískt kenderí.“

„Eru þetta bara sögur from the 80´s?“

Nautið

„Er þetta matseðill?“

„Landssamband nautgriparæktenda smellti í flotta ársskýrslu.“

Leiðin út í heim

„Hrifinn af þessari, fær topp einkunn.“

„Einföld, skemmtileg og öllu snúið á hvolf.“



Álitsgjafar:

Hildur Sigurðardóttir, grafískur hönnuður

Ólöf Birna Garðarsdóttir, grafískur hönnuður

Ólöf Skaftadóttir, blaðamaður


Kristjana Guðbrandsdóttir, blaðamaður

Jakob Bjarnar Grétarson, blaðamaður

Hilmar Þorsteinn Hilmarsson, grafískur hönnuður

Margeir Gunnar Sigurðsson, bóksali

Jón Kaldal, ritstjóri

Þorsteinn Joð Vilhjálmsson, kvikmyndagerðarmaður.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×